Bylgju blogg

miðvikudagur, nóvember 07, 2007

Lokaverkefni og framtíðin...

Ég er komin með lokaverkefni á vinnustaðnum mínum, Nimblegen, sem kallast "Aðferðarþróun í merkingum á DNA fyrir örflögurannsóknir". Ég að vísu byrja örugglega ekki framkvæmdina sjálfa fyrr en í janúar en ég er afskaplega spennt fyrir næstu önn því hún verður bæði krefjandi og örugglega skemmtileg og verður gaman að takast á við nýjan vettvang.
Lokaverkefnið mitt er 12 einingar og er því full vinna í 12 vikur en líklega vinn ég að rannsókninni sjálfri í janúar-mars og nota svo fyrri hluta apríl mánaðar til að klára að skrifa lokaskýrsluna sem líklega verður ca 70 bls. að lengd.

Mér finnst ofsalega skrýtið hvað það styttist í það að ég verði lífeindafræðingur og mér finnst alltof mikið af stórum ákvörðunum sem ég þarf að taka fljótlega í sambandi við framtíð mína. Eitt veit ég að framtíðin er björt og ekkert nema bjartsýni í mér. Það er bara málið að ég er náttúrlega svo skipulögð að ég vil helst vera með niðurskrifað skiptulag fyrir næstu 10 ár lífs míns hehe...en eins og er þá er ég einungis búin að skipuleggja næstu 6 mánuði (í huganum samt, ekki á blaði! :D).

Það hefur verið svo auðvelt hingað til að vita alltaf hvað gerist næst. Fékk að vísu svipað tremma þegar ég þurfti að velja mér háskólanám árið 2003 og finnst stundum að maður eigi að hafa svona persónulegan ráðgjafa sem maður getur leitað til og hann bara segir manni hvað sé réttasta ákvörðunin og hvað kemur best út fyrir mann :)...en nei lífið er ekki alveg svo einfalt...maður þarf víst að ákveða sumt sjálfur.

P.S...AFI!!!!!!

fimmtudagur, nóvember 01, 2007

Einkaþjálfunin búin!
Þá er 8 vikna einkaþjálfun lokið og við Sigrún farnar að hreyfa okkur á okkar eigin vegum! Við vorum báðar ánægðar með árangurinn og eru helstu tölur þær að ég missti 3,2 kg, 8 cm af mallanum, 7 cm af rassinum, 5 cm af lærum, 5 cm af baki og 2 cm af upphandleggjum.
Til að fagna þessu keypti ég mér tvennar buxur sem poka ekki á mér :-)

Ég vil taka það fram að við tókum þessa sentímetra með ótrúlega eðlilegum hætti, hefðum getað misst okkur í próteinin og ofurhollustu en við ákváðum að borða venjulegan mat og taka gullna meðalveginn á þetta, allt er gott í hófi! :-)

Nú er það bara að halda áfram og er ég búin að búa mér til prógramm og hlakka til að ráðast á fleiri sentímetra!