Októberfest ofl.

Jæja um síðustu helgi skildi ég kallinn eftir heima við bakstur og ég dreif mig út á lífið með vinkvennum nokkrum. Förinni var heitið á októberfest hjá HÍ og OMG hvað það var drullugt þarna! Ég kom heim með drullu upp að hnjám! En ég var þó klædd til þess að vera þarna annað en sumar ;) og við Harpa fórum á kostum í dansi og söng :)
En aðal tilkynningin er sú að á fimmtudaginn ætla ég að vera á bókhlöðunni frá 8:30-16:45 og væri gaman að sjá bókhlöðuandlitin mín á staðnum :)
BREYTING Á PLÖNUM:
Ég verð ekki komin fyrir hádegi á þjóbó...kem örugglega kl. 13.
P.S veit ekki hvaða maður þetta er fyrir aftan okkur, hann bara óvart lennti á þessari mynd með okkur







