sunnudagur, september 16, 2007
miðvikudagur, september 05, 2007
JÆJA!!!!
Vá hvað það er búið að taka langan tíma fyrir mig að blogga, hef einfaldlega ekki nennt því!
En þar sem skólinn er byrjaður verður maður að byrja að blogga.
Ýmislegt hefur gerst síðan síðast og má þá helst nefna að við fórum til Krítar og skemmtum okkur æðislega. 31-40°C og fórum að kafa, Jet ski, Go kard, vatnsleikjagarð ofl...ohh var eiginlega bara of stutt að vera bara 1 viku.


SKÁL!
En nú ætla ég að segja ykkur frá því hvað er gaman í skólanum hjá mér :)
Á mánudaginn var ég að grúska í líffærum úr krufningu...heila, hjarta, nýrja, lifur, magi ofl. og nældi mér í nokkrar sneiðar úr þeim sem ég vinn svo frekar með á önninni.
Áðan var ég svo að kryfja rottu og tók ég upp símann og tók nokkrar myndir til að sýna ykkur :)



En ég ætla bara að hafa þetta stutt og laggott þar sem ég þarf að fara að læra...strax farið að hlaðast upp af verkefnum.
Hafið það gott...og ég lofa að ég blogga oftar núna framvegis :)
