Bylgju blogg

mánudagur, júlí 30, 2007

Mus musculus, afmæli o.fl.

Hver stenst svona andlit? Tja ég skal segja ykkur það að músin hefur alltaf verið soldið í uppáhaldi hjá mér þangað til á fimmtudaginn.




Músasagan:
Ég er að koma heim úr vinnu og á leið í aðra þegar ég lít aftur fyrir mig og sé eitt svona dýr hlaupa meðfram eldhúsinnréttingunni. Ég stekk til og loka öllum hurðum og hugsa með mér "shit ég verð að taka hana áður en Gummi kemur heim"...veit samt ekki alveg af hverju því það var nú ekki ég sem kom henni fyrir inní íbúð....en allvena sný ég mér aftur inní eldhús þegar ég sé AÐRA hlaupa uppá eldhúsinnréttingarborðinu!!! Díses ég vissi ekki hvað á mér stóð veðrið og lokaði gluggum áður en það kæmu fleiri inn!....Ég hljóp svo á eftir músinni sem var uppá borði með skál og náði að króa hana af inní horni og hvolfdi yfir hana skálinni....en hin músin var TÝND.

Gummi kom heim en ég var að fara í næstu vinnu þannig að hann kom sér í vígalegar stellingar til að ná músinni!....eitthvað mikið gekk á því að þegar ég kom heim kl. 11 um kvöldið var hann gjörsamlega búinn að hvolfa íbúðinni! Sófinn var kominn í sundur og uppá rönd á miðju gólfi og allir borðstofustólarnir komnir uppá borð...ekki má gleyma að kallinn var með sokkana yfir buxurnar og vígalegur!

Við fórum svo í leiðangur um miðnætti til að kaupa músagildrur og til að sleppa þeirri sem ég náði um daginn. Við komum svo gildrunu fyrir á þeim stöðum sem okkur fannst líklegt að músinn færi framhjá og settum ost í gildruna. Treglega fórum við svo að sofa þó svo nóttinn hafi verið soldið laussofin. Daginn eftir kíkti ég spennt í gildrurnar og hvað sé ég...Helvítis músin hafði náð ostinum án þess að smella í gildrunni! Díses...settum við þá hvítlauksrjómaost í staðinn því það þyrfti að hafa meira fyrir því að ná honum úr gildrunni...og jú músin náðist seinni part föstudags!...dauð.

Vil ég koma því á framfæri ég við búum á 3-hæð í 1árs gömlu húsi og er ótrúlegt að þessar mýs hafi átt leið hingað inn!

Afmælissagan:
En að öðru...Á sunnudaginn þar síðasta hélt gamli kallinn minn upp á þrítugsafmælið sitt hérna heima með kökum og kaffi. Bauð hann fjölskyldum okkar beggja og voru miklar kræsingar í boði.
Þetta heppnaðist mjög vel og fékk hann gasgrill frá mömmu minni og pabba og svo fékk hann gjafabréf í golfbúðina frá flestum öðrum. Ég tók enga mynd úr afmælinu svo þið verðið bara að ímynda ykkur aðstæður.

O.fl.
Nú fer sumarið að styttast í annan endan en það þýðir líka að það er ekki nema 12 dagar þangað til að við förum til Krítar!!! Ohh hvað ég hlakka til að sitja í 30°C hita með bjór í annari við sundlaugarbakka!

Þegar sú vika er búin hefst mitt lokaár í lífeindafræði. Díses hvað allt líður hratt, áður en maður veit af verður maður kominn á elliheimili.

Ég ætla að láta þetta duga í bili...þangað til næst...Adios!