Bylgju blogg

mánudagur, júní 25, 2007

Helgin: Jónsmessugolfmót, Útileiga og meira golf. SEM SAGT LANGT BLOGG



FÖSTUDAGUR

Við skötuhjúin skelltum okkur á Selfoss á föstudaginn og ég hef aldrei lent í því að vera 20 mínútur niður kampana að sumri til. Það var þvílík umferð og allir að fara í útileigu eða í bústaðinn sinn. Þegar LOKSINS á Selfoss var komið þá fór ég og Bylgja á Jónsmessumót Golfklúbbs Selfoss, sem var alveg frábær skemmtun í alla staði. Það voru ýmsar skrautlegar þrautir á teigum og átti t.d. að: pútta með Driver, snúa sér í 4 hringi áður en slegið var í kúluna, kasta með vinstri hendi heila braut og ýmislegt fleira.

Ég náði í ein verðlaun fyrir að vera í miðjunni ásamt annari konu í samtals skori:D.
Ég vann 2 golfkúlur og gaf ástinni minni aðra kúluna.
Eftir mótið var farið í sumarhúsið okkar(heima hjá tengdó) og gist þar yfir nóttina.


LAUGARDAGUR

Vaknað kl 08.00 og Bylgja var dregin á fætur þá ;)

Allt gert klárt fyrir útileigu og brunað af stað. Við lögðum af stað með því að fara á Flúðir og eyða nóttinni þar. En þegar þangað var komið var allt fullt og við leituðum annað. Þá var farið í Árnes og leist okkur ekki alveg á það. Þá var hausinn lagður í bleyti og ákveðið að keyra til Laugarás. Þar fenguð við frábært stæði til að tjalda. Það var frekar hvasst og erfitt að tjalda. ÞAÐ REYNDI MIKIÐ Á ÞOLINMÆÐINA MÍNA OG BYLGJA ÁSTIN MÍN Á HEIÐUR SKILINN OG FYRIRGEFNINGU FYRIR HVAÐ ÉG VAR LEIÐINLEGUR.

En svo hafðist það að lokum að tjalda og fljótlega eftir það um 1 leytið birtust Heimir, Sigrún og prinsessan Ólöf Vala.

Þegar við vorum búin að koma okkur fyrir þá var haldið í göngutúr og byrjað á því að fara á veitingastaðinn á svæðinu(sem verður hér eftir kallaður Ömmustaðurinn) :D


































Bylgja og Sigrún ánægðar með að komast af stað í göngutúr. Ef þið skoðið efri myndina vel þá sést hvað Sigrún er að gera sig svoldið skrýtna fyrir aftan Bylgju hehe. Sorry Sigrún en það varð að birta þessa mynd.

Eftir smá át þar var farið í Slakka og skoðað dýrin þar og farið í mínigolf.
Þar sigraði ég(36 högg) eftir harða keppni við Heimi(37 högg).















Göngutúragengið.



Þegar við vorum búin í Slakka og þá fóru ég og Heimir í smá leiðangur. Eftir hann þá fóru við aftur á Ömmustaðinn og fékk ég mér 3 kökusneiðar(1/3 úr venjulegri sneið) með miklum rjóma sem "amma" staðarins hafði bakað. Heimi fékk sér bara 2 tegundir:) Þessar kökur eru bara tær snilld og ég bara get ekki beðið eftir að fara þangað aftur í útileigu og fá meiri kökur hehe.





















Bylgja, Sigrún og Ólöf Vala (shit hvað eggjastokkahljóðið í Bylgju ómaði hehe)


















Smá hint hvernig ömmustaðuerinn lítur út. Bara snilldar staður.

Eftir þetta át var farið aftur upp í tjald og slakað á fyrir kvöld átið.

Smá myndasyrpa af prinsessunni














































Daman hreinlega elskar myndavélina og svo er ég náttúrulega svo skemmtilegur :D


Eftir grill og át, þá var farið að kólna og við klæddum okkur upp í betri föt og prinsessann svæfð. Þá settumst við út og drukkum lítið en þó aðeins og tjöttuðum.


















Heimir og ég í góðum gír með Ólöfu Völu steinsofandi á milli.



















Sigrún að reyna sleikja síðustu sólargeislana svo henni verði hlýtt enda var henni orðið skítkalt þarna.




















Bylgja til í allt enda vel klædd og komin í Lite-inn hehe


Þegar þarna var komið við sögu var farið að kólna verulega og drifum við okkur inn í tjald til að fá smá hlýju og koma Ólöfu Völu fyrir inn í tjaldi enda daman steinsofnuð.

Þá fór Guðmundur í spilastokkaleiðangur og lánaði konan frá ömmustaðnum mér einn stokk svo við gætum tekið smá kana og laumu inn í tjaldi.

















Heimir að fara á kostum á meðan ég leitaði að spilum með því að rúlla sér inn í tjaldinu hehe


Þegar búið var að taka nokkur spil þá var farið að sofa og var þá pínu kalt í tjaldinu en það stóð ekki lengi.
Um 6.30 vaknaði sú stutta og var orðið mikið heitt þar sem hitinn í tjaldinu var orðinn óbærilegur fyrir okkur öll. Um hálf 8 gat ég ekki þetta lengur og dreif mig á labbir og þegar út var komið var eins og um frelsun væri að ræða því hitinn var orðinn SVO MIKILL.


















Ólöf Vala frekar hress eftir að hitinn lækkaði í tjaldinu og hún komst í lyklana mína. Bylgja frekar úldin fyrir aftan hehe;)

Þegar við vorum búin að fá okkur flatköku með kæfu og kæla tjaldið þá var lagt sig aðeins. Eftir blundinn þá fórum við á ömmustaðinn og fengum okkur kaffi. Þegar við vorum búin að fá okkur kaffi fór ég og Heimir að kveikja upp í grillinu fyrir hádegismat DAUÐANS. Við elduðum 7 hamborgara, Bylgja át 1, ég 3 og svo Heimir 3 plús eina pylsu. Eftir matinn gengum við frá öllu dótinu og skelltum okkur í sundlaugina í Reykholti. Það var ljúft og eftir það var farið heim.

p.s. aðeins meira um golf en ég náði loksins að lækka mig í forgjöf í opna Globus mótinu. Spilaði næstum því eins og Tiger og er forgjöfin mín komin úr 36 niður í 32.5. LOKSINS hafðist þetta:)

En miklu meira en nóg í bili.

fimmtudagur, júní 14, 2007

Sko ég er bara orðin ofsalega löt við að blogga..en hér kemur smá update!

Fórum á Silfur á laugardaginn og ég borðaði Kengúru og naut og ég smakkaði hálfan snigil! Finnst það alveg ótrúlegt að ég hafi fengist til þess en ég smakkaði þó! :)
Eftir að hafa borðað fullt og drukkið enn meira hittum við Hörpu, Hrafnhildi, Huldu, Auði, Sævar og síðast en ekki síst Guðrúnu og Óla á Nasa og fórum á ball með SSSól. Ballið var lengst af mjög skemmtilegt þó svo ég verð að segja að sumir hljómsveitarmeðlimir eru farnir að vera ansi þreyttir held ég.

Annars hef ég bara verið að vinna og golfast...maður er alltaf að reyna að bæta sig og ég er kannski orðin pínu betri en léleg en samt ekki góð hehe...

Þangað til næst ætla ég að vera að sjúga uppí nefið með hausverk...bæjó!