Bylgju blogg

fimmtudagur, maí 31, 2007


Sælt verið fólkið.

Núna er sumarið gengið í garð og við skötuhjúin komin á fullt í golfið.
Ég afrekaði það í kvöld að ná mínum fyrsta fugli og það gerði ég á Bakkakotsvelli í Mosfellsdalnum. Þetta var rosalegt hehe. Bylgju gengur alveg ágætlega í golfinu og gaman að fylgjast með henni. Hvítasunnuhelgin nýliðin og við eyddum við henni á Selfossi í sumarhúsinu okkar(heima hjá tengdó þau eru erlendis).
En nóg í bili við erum farin að æfa sveifluna hehe :)

fimmtudagur, maí 17, 2007

Komið sæl og blessuð og er óhætt að segja gleðilegt sumar!

Núna er maður farinn að vinna á fullu og maður finnur alveg að sumarið er hafið. Á þriðjudag og miðvikudag skrapp ég til að hlusta á varnir hjá lífeindafræðingum sem eru að útskrifast núna. Það hefur gert mig ansi spennta fyrir komandi ári og er ég farin að hugsa voðalega mikið um hvað koma skal í náminu og er ég svona komin með grófa mynd af því hvað ég ætla að gera næstu 2 árin og er ekkert nema tilhlökkun í mér :)

Prófin gengu vel hjá mér en ég er að vísu ennþá að bíða eftir 2 einkunnum sem koma örugglega í næstu viku :)

fimmtudagur, maí 10, 2007

KOSNINGAR OG EUROVISION




















Fuck kosningar og stjórnmálaflokka




Jæja gott fólk þá er maður kominn á bílinn sem er sýndur hér að neðan og það er bara rosalega gott að keyra hann. Babu var að kaupa sér líka nýjan bíl og það ekki á verri endanum sá gripur. Audi 2002 ekinn BARA 52000km. Hann er víst með leðri og crusecontroli sem ég bara öfunda hann af þar sem ég elska Audi bíla. En það er dýrt viðhaldið á þeim en ég á samt einhverntímann eftir að kaupa mér einn slíkann.

Eurovision var í kvöld og eins maður vissi þá komumst við ekki áfram enda lagið líka þetta ömurlega lélegt.

Þá er bara eftir þessar leiðinlegu kosningar þar sem enn og aftur er enginn flokkur sem hægt er að kjósa þar allir flokkarnir eru hver öðrum lélegri. Það þýðir ekkert að commenta hér með að segja mér að kjósa XD eða XS eða þar eftir götunum.

XD menn vilja einkavæða allt saman sem leiðir til þess að allt hækkar sem verður einkavægt.

Ég er þó sammála vinstri grænum að það þarf að stoppa af fleirri byggingar á álverum því það er alveg nóg fyrir Ísland að hafa 4 slík.

Verst er að ef það verður vinstri stjórn þá hækka skattarnir og ef það verður sama stjórn og er núna þá þýðir það að fleirri milljörðum verður hent út um gluggann í nýtt hátækni sjúkrahús þar sem hægt er að nota þessa milljarða til að byggja við gamla borgarspítalann og spara þannig peninga og nota þá inn í heilbrigðiskerfið.

Samfylkingin vill gera eins og norðmenn og danir gera og það þýðir að skattar hækka og ekki viljum við það.

Framsókn má líka við homma sem eru inn í skápnum og koma bara út þegar þeim hentar og þannig hefur framsókn lifað af í gegnum árin og versta við það er að þeir vita það líka.

Ekki er hægt að tala um Frjálslynda eða Íslandshreyfinguna því þeir valla mælast í skoðanakönnunum. En það væri samt bara fyndið ef feiti formaðurinn kæmist ekki á þing því hann er svo hrikalega leiðinlegur stjórnmálamaður.

Þannig að ég hugsa að ég merki við X-Árborg FC fyrir komandi bikarleik hjá okkur.

Já og eftir morgunndaginn þá fæ ég loksins hrein föt, mat á kvöldin og konu mína í rúmið þar sem prófin hjá Bylgju líkur á morgunn og ég hætti að vera grasekkjumaður:D

Góða helgi og kjósið X-Árborg FC fimmtudaginn 17.maí og fjölmennum á leikinn og já við erum að spila á móti Víði frá Garði.

miðvikudagur, maí 02, 2007



Bíllinn sem verður keyptur á næstu dögum.



Sælt verið fólkið.

Langt síðan að ég hef sett inn færslu. Þessa dagana er ég einsetumaður og engin Bylgja til að hugsa um gamla manninn. En ég hef nýtt tímann vel og leitað mér að nýjum bíl og hann er fundinn og verður vonandi gengið frá kaupunum á allra næstu dögum. Mér líður eins og ég sé blessaður því það er bara einn eigandi að bílnum og það er enginn annar en Biskup Íslands. Bílabænin er á sínum stað í bílnum og er ég og Bylgja búin að prufa gripinn og staðfesta að við ætlum að kaupa hann. Þetta er Volswagen Passat 2004 og er ekinn tæpa 43.000 km. Bíllinn er með topplúgu, 2000 vél og er sjálfsskiptur Bylgju til MIKILLAR gleði því hún vill bara sjálfsskipta bíla.
Núna rétt í þessu var leik AC Milan og Man U að enda í undanúrslitum í Champaleauge og vann AC leikinn 3-0 mér til mikillar gleði og því þetta er endurtekning frá því árinu 2005 þar sem Milan og Liverpool mættust í úrslitaleiknum sem Liverpool vann auðvitað og verður gaman að sjá Liverpool endurtaka leikinn aftur. En eins og þið sjáið þá hef ég ekkert að gera þar sem Bylgja er ekkert á svæðinu til að hugsa um gamla manninn og þá er bara um að gera að blogga. En þið sem eruð að læra á fullu undir próf, gangið ykkur bara vel og þið getið hugsað til mín þegar þið eruð að læra um helgar þá er ég bara sofandi hehehehehehehehehe