Komið sæl og blessuð!Ég er búin að fá miklar skammir fyrir bloggleysi þannig að hér verður bætt aðeins úr því!
Við Hrafnhildur erum að taka lærdómshelgi útí skóla og ég fór svona að velta fyrir mér hvað ég hefði verið að gera fyrir ákkúrat ári síðan(svona í tilfefni af því að ég átti að vera að læra) og ég kíkti á gamalt blogg og kom í ljós að t.d bloggaði ég nákvæmlega þennan dag fyrir ári síðan. Þá vorum við Hrafnhildur ákkúrat að taka lærdómshelgi útí skóla og soldið skemmtilegt að segja frá því að ákkúrat þennan dag fyrir ári síðan tók Gummi af mér bílinn vegna þess að hann var að fá bílprófið sitt aftur :)
Ákkúrat þessa stundina líður mér eins og þessari teiknimyndarpersónu...úff geyspa hreinlega útí eitt!!!...en ég er sem sagt að fara í próf á miðvikudaginn í sameindalíffræði en ég er svo endanlega búin í prófum þann 11.maí kl. 12:00....og þá hefst sumarvinnan!
Ég verð að vinna á sýklafræðideild landspítala háskólasjúkrahús og svo held ég aukavinnunni hjá NimbleGen System áfram í sumar. Ég ætla svo að gera meira en að vinna í sumar því ég stefni á að verða betri en léleg í golfi og ætla að vona að það takist :) ...en annars er þetta samt skemmtilegt þótt ég sé enginn meistari en útilegur eru líka á dagsskrá hjá mér. Verst er bara alltaf hvað sumrin eru fljót að líða...það er alveg merkilegt.
En áður en ég fer mikið að pæla í sumrinu....þá er best að halda sig á mottunni og klára prófin fyrst.