Bylgju blogg

föstudagur, mars 30, 2007



Krít í sumar!


Við erum búin að panta okkur ferð til Krítar í sumar! Nánar tiltekið þann 11.ágúst-18.ágúst. Vá hvað ég hlakka til!
Þetta er myndin af hótelinu sem við verðum á og svo vildi ég bara sýna ykkur hvað strandirnar á krít eru fallegar :)
Okkur á örugglega ekki eftir að leiðast og er ég nú þegar farin að hugsa um vatnsleikjagarða, waterski og scupa dive! og svo að sjálfsögðu bara að liggja og sötra bjór og hafa það ógeðslega næs saman!

mánudagur, mars 19, 2007

Elsku Þórunn.
Núna ertu farin frá okkur en þó hef ég trú á því að þú sért nú ekki farin langt. Minningin um þig á alltaf eftir að vera í hjörtum okkar sem eftir lifa og þau sem kynntust þér hafa öll lært eitthvað af þér.

Þú hefur þurft að ganga í gegnum margt í gegnum tíðina og síðasta verkefnið sem þú fékkst í hendur, eins og þú orðaðir það, var að berjast við krabbamein. Eins og við vitum öll er ómögulegt að segja hvernig slíkt stríð endar og eftir hetjulega baráttu fór sem fór.
Ég mun alltaf minnast þín sem afskaplega góðri manneskju sem vill gera allt fyrir aðra og það hefur verið fríðindi að fá að þekkja þig. Ég er viss um að þú haldir áfram að hjálpa okkur í gegnum lífið þó svo þú gerir það annars staðar.

Þó sorgin sé sár,
og erfitt er við hana að una.
Við verðum að skilja,
og alltaf við verðum að muna,
að Guð hann er góður,
og veit hvað er best fyrir sína.
Því treysti ég nú,
að hann geymi vel sálina þína.

Bylgja frænka.

sunnudagur, mars 11, 2007

Enn ein helgin liðin!

Þetta er að vísu vinnuhelgi hjá okkur skötuhjúum þannig að það gerist ekki mikið hérna.
Í gær kíkti ég að vísu á Selfoss í svona heimsóknar-rúnt að deginum til. Byrjaði á því að fara heim til mömmu og pabba þar sem ég hitti mömmu og Birgi Þór, fór svo að heimsækja Þórunni systir mömmu á spítalann.
Þórunn er orðin afskaplega veik og er talið að í það mesta séu nokkrar vikur eftir:( . Ég sat hjá henni í töluverðan tíma ásamt Helgu Bettý og ömmu og afa. Ég vona innilega að ég þurfi aldrei að upplifa það sem hún er að upplifa þessar síðustu vikur þar sem þarf að vera á morfíni allan daginn svo að verkirnir verði bærilegri. Ég fæ alltaf tár í augun þegar ég hugsa til hennar og er afskaplega viðkvæm þessa dagana. Kannski betra að vera búin að komast yfir ákveðinn part af sorginni áður en það kemur að kveðjustund. Maður veit þó aldrei hvenær er síðasta heimsóknin því svona lagað getur breyst á einni nóttu og verður örugglega alltaf jafn mikið sjokk þó svo maður viti í hvað stefni. Erfitt að segja það en þegar að þessu stigi er komið þá er vonandi, hennar vegna, að þetta taki ekki langan tíma.

Jæja þá er best að fara að þurrka tárin sín og reyna að læra...

sunnudagur, mars 04, 2007

Alltí lagi þá :)

Það er svona helst í fréttum að ég er hóstandi þessa dagana og er það að skemmta mér á næturnar! Ohh það bara getur ekki verið meira pirrandi en þegar ég vaki klukkutímum saman hóstandi stanslaust!

Í skólanum er það helst að námsefnið er búið og ég er í verknámi fram að prófum ásamt verefnavinnu ýmis konar. Í síðustu viku (fyrir utan þá daga sem ég lá heima veik) var ég uppá veirudeild og verð þar einnig í næstu viku, því næst á sýklafræðideildinni og svo fer ég í svona vettfangsferðir í eina viku þar sem við kíkjum á fyrirtæki utan LSH sem snúa að okkar starfi. Til dæmis er ég að fara í heimsókn á vinnustaðinn minn NimbleGen :)

Það er mjög gaman í verknáminu og t.d tók ég sýni úr nefkoki og hálsinum á mér þegar ég fann að ég væri komin með eitthvað, ræktuðum það og komumst að því að það er ekki flensa né RS vírus sem er að angra mig og við stelpurnar hugsum að það hljóti þá að vera Haemophilus bakterían sem er búin að ná sér bólfestu í mér...en þar sem ég er að ekki á sýklafræðideildinni þessa dagana get ég ekki athugað það :)

Aftur á móti fannst í mér Herpes veira sem greinilega er að fela sig mjög vel því ég hef aldrei á ævinni fengið frunsu! En það er sem sagt mjög algengt að fólk sé með herpes veiruna í sér þó svo það viti ekkert af henni...

Ég ætla að láta þetta duga í bili svo ég hafi eitthvað að segja næst...ég er farin í apótek núna til að undirbúa næstu nótt, ná mér í Parkódín og sonna non-hósting-gotterí!