Bylgju blogg

föstudagur, febrúar 09, 2007

Þetta á ROSAlega vel við mig!!! og marga sem ég þekki líka :D

Þú ert 90´s barn ef þú:

Þú getur klárað þessa setningu [ice ice _ _ _ _ ]

Þú manst eftir því þegar það var ennþá spennandi að vakna á laugardagsmorgnum til að horfa á barnaefnið...

Þú færð ennþá "urge" til að segja "NOT" á eftir næstumþví öllu

Það var gert út um málin með "steinn skæri blað" eða "ugla sat á kvisti"...

Þegar lögga og bófi var daglegt brauð

Þegar við fórum í feluleik þangað til við gátum ekki meir

Þegar við vorum vön að hlýða foreldrum okkar...

Þú hlustaðir á útvarpið allan liðlangan daginn til að bíða eftir uppáhaldslaginu þínu, til að taka það upp á kasettutækið..

Þú manst eftir því þegar Super Nindendos og Sega Genisis urðu vinsælir

Þú horfðir alltaf á America's Funniest home videos

Þú horfðir á Home Alone 1, 2, og 3 og reyndir að gera sömu trikk

Þú manst eftir því þegar Jójó voru kúl

Þú horfðir á Batman, Aladín, Turtles og Pónýhestana...

Þú manst eftir sleikjóunum sem voru á hring til að hafa á puttanum..

Þú manst þegar það áttu ekki allir geislaspilara

Þú bjóst til gogg þegar þú varst lítill...

Þú áttir tölvugæludýr

...eða Furbie

Þú hefur ekki alltaf átt tölvu, og það var töff að vera með Netið

Og Windows '95 var best

Michael Jordan var aðal hetjan..

Kærleiksbirnirnir

Þú safnaðir lukkutröllum

Og áttir vasadiskó

Þú kannt Macarena dansinn utanað

Þú veist af hverju 23 er kúl tala

Áður en að Myspace varð vinsælt,

Áður en Netið kom og enginn vissi hvað sms var..

Áður en ipod kom til sögunnar

Áður en PlayStation 2 og Xbox voru til,

Þegar strigaskór með blikkljósum voru málið

Og þú leigðir spólur, ekki dvd,

Og það var eiginlega enginn með símanúmerabirti

Og þegar við hringdum í útvarpið til að reyna að fá uppáhalds lagið okkar spilað til að hlusta á í vasadiskóinu

Áður en við áttuðum okkur á því að allt mundi breytast

Hver hefði getað ímyndað sér að við myndum sakna þessara tíma!

þriðjudagur, febrúar 06, 2007

Update úr öllum áttum

Vinnan:
jú ég er byrjuð að vinna hjá NimbleGen og gengur það óskaplega vel. Ég byrja svo á föstum vöktum eftir eina viku og er ég rosalega ánægð með þær vaktir sem ég fékk, sem sagt alla þriðjudaga frá 17-23 og svo aðra hverja helgi (lau, sun) frá 17-23. Þannig að þetta er ekkert sem ætti að trufla nám mitt né annað. Ekki nóg með það þá verðum við Lena að vinna bara tvær saman nema annan hvern þriðjudag þá lendi ég með einhverjum öðrum á vakt.

Skólinn:
Þar er þvílíkt keyrsla þar í gangi. Erum sem sagt alveg að verða búin að fara yfir allt námsefnið til prófs!!!! :S Eftir það hefst svo vinna á LSH þar sem við ýmist fáum að krukka í einhverjum sniðugum líkamsvessum (blóð, piss, saur, hráki, gröft úr sári, nefkokssýni, nefsýni, hálsstrok...osfr.) hehe ég veit þetta hljómar alls ekki vel í eyrum ykkar sem ekki eruð með mér í námi en þetta er nú öðruvísi en þetta hljómar :)

Fjölskyldan/Daglegt líf:
Mamma átti afmæli síðasta sunnudag og kíktum við hjónaleysin á Selfoss í kaffi og kökur. Gummi var sérstaklega hófsamur því hann var á leiðinni á fótboltaæfingu en hann hafði nú orð á því að hann hefði verið mjög nálægt því að sleppa henni og tapa sér í góðgæti :) hehe en nei við erum svo ofsalega dugleg orðin hérna að það er nú bara ótrúlegt.
Gummi er sem sagt núna hjá einkaþjálfara sem rekur hann áfram með harðri hendi og svo er ég eins og áður hefur komið fram í World Class og hjá Óla næringarfræðingi. Var einmitt hjá honum í morgun og í mælingu í World Class í gær. Það fór nú svo vel að ég er 1,7 kg léttari í dag en fyrir tveim vikum og 5 cm farnir af mallanum síðan ég byrjaði í World Class. Athugið svo að ég er búin að vera reyklaus síðan 11.janúar og því enn meiri ástæða til að vera ánægð :)
Við höfum svo verið að nýta okkur aðstöðuna í Básum að undanförnu og þau Jón Sveinberg og Málfríður verið okkar samferðarfólk þar :) Búið að vera voða gaman og við höldum þessu sko áfram þangað til að maður fer á flatirnar í sumar :D

Eitt mont í viðbót. Ég rakst á gamla mælingu síðan í febrúar í fyrra og jesús minn hvað ég hef verið magamikil þá! Allavena þá eru 14 cm farnir af maganum síðan þá sem betur fer!

En þangað til næst bið ég að heilsa :)

P.s kæru vinkonur, ég væri til í að hitta einhverjar af ykkur um næstu helgi! ;)