Bylgju blogg

föstudagur, janúar 26, 2007

Takk fyrir stuðninginn gott fólk!

Ég var að fá þessar fínu fréttir í dag...ég er að fara að byrja að vinna á mánudaginn hjá NimbeGen System, sem er fyrirtæki hérna rétt fyrir ofan heimili mitt, og þar er ég að fara að vinna við að smíða DNA örflögur.
Líst voðalega vel á þetta og þegar ég hringdi í Lenu í dag til að segja henni fréttirnar (Lena sem sagt vinnur þarna líka) þá kom ég henni í þetta ægilega góða skap. Vonandi munum við vinna eitthvað saman á vöktum í framtíðinni en það á allt eftir að koma í ljós hvenær og hversu mikið ég mun vinna þarna. A.m.k til að byrja með mæti ég nánast upp á hvern dag til að læra á græjurnar og svona komast inní þetta almennilega áður en maður fær að stjórna þessu sjálfur.

En að öðru þá var hún Irma Rán frænka mín og Steinar að eignast 20 marka son í gærkvöldi! Ég veit ekki betur en þeim heilsist öllum vel og vil ég óska þeim innilega til hamingju með stóra drenginn.

...og allt annað....ég var að stofna nýja bloggsíðu en sú bloggsíða er einungis til að ræða fréttir og svona pólitískari málefni. Ef þið hafið einhvern áhuga á slíku þá er slóðin bylgjab.blog.is
en hún er að vísu algörlega hrá og á byrjunarreit en maður verður víst að byrja einhvers staðar.

En ég vona bara að þið hafið góða helgi! Þetta er vinnuhelgi hjá Gumma þannig að ég ætla að reyna að vera dugleg að gera eitthvað eins og t.d að stytta væng nr. 2...já hvernig væri það!

En þangað til næst, verið þið sæl!

þriðjudagur, janúar 23, 2007

Þú getur þetta!!!
Þetta stendur á "meðferðar"blaðinu mínu fyrir daginn í dag. Sem sagt alveg að verða komnar tvær vikur í reykleysinu og mér líður ennþá vel og get ekki ímyndað mér annað en þetta eigi eftir að vera í góðu lagi. Að vísu hef ég ekki og mun ekki á næstunni smakka áfengi því ég er rosalega smeyk um það! Málið er að síðan ég drakk fyrst þá reykti ég líka mína fyrstu sígarettu...þar að segja ég hef ALDREI drukkið án þess að reykja!!! ...og ég er svo hrædd um að ég verði kærulaus þegar ég fæ mér áfengi og sannfæri mig um að það sé í lagi að reykja á meðan maður er að drekka, en það er bara alls ekki þannig. Maður er fíkill og verður það alltaf og getur aldrei orðið hófreykingarmaður úr þessu.

Ég hef líka verið að skoða ansi mikið af bloggsíðum hjá ungu fólki sem er með lungnakrabbamein og alls kyns krabbamein og það minnir mann á það að maður er ekki ódauðlegur þótt maður sé bara 24 ára! Til að mynda er ég búin að vera að lesa bloggsíðu hjá 19 ára stúlku sem greindist með lungnakrabbamein fyrir um ca ári síðan!!! úff....
Einnig er hún Þórunn, systir mömmu minnar ansi veik þessa dagana :( Hún greindist fyrst með brjóstakrabbamein fyrir einhverjum árum síðan, tveimur minnir mig, og þá var talað um að þetta yrði ekkert mál og sjaldan sem brjóstakrabbamein greinist svona snemma...nema hvað í dag er hún með nokkur æxli í lungunum og meinvörp komin í rifbeinin og hrygginn.

Enn og aftur er einhver í fjölskyldunni minni með krabbamein...þetta er svo furðulegt, það eru svo margir sem ég þekki búnir að fá krabbamein að ég hef ekki tölu á því lengur...
Þetta er því ein enn áminningin um að maður verður að standa sig í þessu!

Allt gengur svo bara vel hjá mér þessa dagana: ræktin, viktin, námið... ofl.!

miðvikudagur, janúar 17, 2007

Update!
Jæja þá er komin ein vika hjá nýju Bylgju, þar að segja reyklaus í viku og líkamsrækt í viku :)

Að vera reyklaus er bara ótrúlega auðvelt, svo miklu auðveldara núna en síðast og ég hef ekki fundið fyrir neinni þörf til að reykja á þessum tíma! Ég vil nú þakka lyfinu Zyban fyrir þessu að hluta til og mæli ég eindregið með því fyrir fólk sem langar að hætta og hefur reynt það áður :)
Ég vona allavena að þetta verði alltaf svona auðvelt og fari ekkert að breytast :)

Líkamsræktin og mataræðið er að ganga voðaleg vel og ég sé viktina stíga niður á við en það verður almennileg viktun á þriðjudaginn í næstu viku þegar ég hitti Óla næringarfræðinginn minn, ég ætla líka rétt að vona að viktin þar sé eins jákvæð og mín eigin ;)

Ég verð að nefna eitt í viðbót. Fólk talar oft um að þegar það hættir að reykja þá fari það að hella sér í nammi eða eitthvað slíkt. Ég hef ekkert borðað nammi en aftur á móti er vatnsbrúsinn minn eitthvað sem ég get ekki verið án hérna heima hehe, ég ligg án gríns uppí sófa með vatnsbrúsa og drekk og drekk vatn, bara er endalaust þyrst síðan ég hætti að reykja :D

...en ég bið þá bara að heilsa í bili!

P.s. er búin að stytta einn væng á stofugardínunum! ;)

þriðjudagur, janúar 09, 2007

Komið sæl!

Jæja þá er ég orðin árinu eldri en síðast þegar ég skrifaði og átti ég afskaplega fínan afmælisdag. Við fórum á Selfoss til mömmu og pabba og þangað komu amma og afi í kvöldmat. Mamma og pabbi gáfu mér saumavél í afmælisgjöf og það er ekkert smá gott þar sem maður á nú alltaf eftir að stytta fjandans stofugardínurnar og svo náttúrlega bara er þetta hlutur sem maður verður að eiga :)
Gummi var nú búinn að gefa mér afmælisgjöfina fyrir jólin en hann fjárfesti í líkamsræktinni minni sem er afskaplega gott fyrir svona fátækan námsmann eins og mig ;)

Ég fór til hans Óla næringarráðgjafa í morgun eftir að hafa verið í hvíld yfir hátíðirnar og fékk þær gleðifréttir að ég missti 1,4 kg um jólin! öss átti ekki von á þessu...
Átaksnámskeiðið hófst svo í gær og byrjar fyrir alvöru á morgun en morgundagurinn er jafnframt síðasti reykingardagurinn minn!...allt að gerast mar!!!...

En jæja ég held ég hafi ekki meira að segja í bili...