Lærdómurinn tekur á!Ég sit hérna "ein" á bókhlöðunni og er að reyna að vera voðalega dugleg fyrir næsta próf sem er á miðvikudaginn. Þegar hef ég lokið einu prófi í sjúkdómafræði og bara nokkuð viss um að mér hafi gengið ágætlega.
En þetta tekur heilmikið á líkamann að standa í þessu...ekki nóg með það að bakið á mér hefur mótmælt harðlega síðan ég byrjaði að leggjast í þetta þá tókst mér á einhvern undraverðan hátt að
meiða mig í öxlinni hérna á bókhlöðunni!!!...geri aðrir betur. Ég bara skil þetta ekki en ég snéri mér eitthvað asnalega og fékk svona tilfinningu eins og ég væri eitthvað ekki alveg rétt í liðnum en með því að toga og teygja á hendinni þá líður mér betur en er með verk í öxlinni sem virðist ekkert ætla að fara...díses þessu átti ég ekki von á...
En ég er búin að vera núna í fríi í gær og í fyrradag í próflestrinum og svona aðeins að hlaða batteríin og fór ég í heimsókn til Sigrúnar og Ólöfu Völu báða dagana...já þessi elskulega fjölskylda (þá +Heimir)er flutt í nágrenni við mig, nánar tiltekið í Grafarvoginn og ég er ekkert smá ánægð að núna getur maður skroppið í heimsókn án þess að þurfi að gera dagsplan í kringum það :)
Ólöf Vala bræðir mann enn meira í hvert skiptið sem maður knúsar hana...í gær t.d var hún voðalega kát að sjá mig og fannst ég nú soldið fyndin sko :D
já hún fær mann til að hugsa hvenær maður á eftir að koma með svona snúllu sjálfur og verður nú hún Sigrún að fá lófatak fyrir það að vera svona framúrstefnuleg að koma með barn þar sem ég á nú þónokkar vinkonur og engin önnur af þessum 18 stykkjum er komin með barn, trúlofunarhring eða neitt slíkt nema hún Sigrún og hún er nú orðin gift í þokkabót!...enda er hún búin að vera með sínum kalli í einhver 9 ár en við hinar eigum langt í land með að ná því ;)
En ég á nú slatta eftir af skólanum plús það að koma mér í vinnu þannig að það þýðir ekkert að vera að spyrja mig í tíma og ótíma hvort ég sé að fara að koma með barn...það kemur vonandi að því einhvern tímann og ég lofa að láta vita af því þá :D
kveðja, sú sem er með verk í öxlinni...