Bylgju blogg

miðvikudagur, nóvember 29, 2006

STEINGEIT 22. desember - 19. janúar
Fullkomnunarárátta er streituvaldur. Gerðu mistök bara til þess eins að sýna fram á að ekkert slæmt eigi eftir að gerast ef þú klikkar. Brenndu matinn, draslaðu út og klúðraðu samtölum. Himnarnir hrynja ekki. Hvílíkt frelsi.


Hmm...á ég sem sagt að gera mistök til þess að missa niður stressið...
Ég elda ekki þessa dagana svo ég get tæpast farið að brenna mat, gæti kannski látið lífsglaða þjóbó-kaffikallinn brenna samlokuna mína :)
Ég er ekki heima til að drasla út og efast um að þau á bókhlöðunni yrðu ánægð ef ég færi að flegja bókum úr hillum...tja hvað ætli yrði gert við mig ef ég myndi gera það??
Klúðra samtölum...jú kannski mögulegt...prófa það kannski í kaffinu á eftir hehe...

en nei ég held ég verði bara að halda áfram að láta líf mitt vera fullkomið...;)

sunnudagur, nóvember 19, 2006

Snjór snjór = gaman gaman

Sælt fyrir fólkið!...jii finnst ykkur ekki gaman að fá svona snjó??? Við Gummi klæddum okkur í ægilegt útidress og fórum hérna útá plan áðan að losa bílana okkar og ægileg stemming bara!...margir úti að strögglast með skóflur og fullt af bílum sem komast ekki lönd né strönd :D

Skólinn fer að líða undir lok...og ég er ekki ennþá orðin stressuð, vonandi að stressið komi í mig eftir helgi, allavena var helgin langt frá því að vera lærdómsrík :/
Fórum á Selfoss á föstudaginn að spila við Sævar Gísla og Halldóru sem var afskaplega notalegt og svo í gær fórum við á Extream Team sem var svo sem ágæt kvöldstytting en langt frá því að vera eins og við bjuggumst við og bara alls ekkert spes show.

En aftur að skólanum þá er þessi önn búin að vera soldið skemmtileg bara (með 4.eininga undantekningu). Ég er búin að vera að rannsaka sjálfa mig og aðra í kringum mig og það gerir þetta alltaf svo spennandi...ég er sem sagt síðustu daga búin að vera með þvagprufur í töskunni til þess að skoða í skólanum :D og komst að því að við Gummi erum með ágætlega fínt þvag hehe...

En jæja þá er bara lærdómur framundan og eitt jólahlaðborð 2.des...úff sem segir mér að það eru bara rúmar tvær vikur í fyrsta prófið (arrrggg) :S...

Hafið það gott í snjónum og kveikið á kertum til að gera kvöldin notaleg :)

miðvikudagur, nóvember 01, 2006

Ætli það sé ekki margt til í þessu :)

Hinn fullkomni dagur í lífi EKTA kvenmanns!

8:15 Vakna við að vera föðmuð og kysst
8:30 Er 5kg léttari en í gær
8:45 Morgunmat í rúmið, morgunkorn og ávexti
9:15 Fara í heitt bað og hlusta á Willham Young
10:00 Léttar æfingar í líkamsræktarstöðini með myndarlega og fyndna
þjálfaranum.
10:30 Hand-, andlit- og fótsnyrting á rándyrri snyrtistofu
12:00 Fara á kaffihús með bestu vinkonunum
12:45 Sé kærustu fyrrverandi kærasta míns... hún hefur fitnað um 15kg!
13:00 Versla með vinkonunum og það er endalaus heimild á kortinu
15:00 blundur
16:00 4 tylftir af rósum sent heim frá ónefndum aðdáanda.
16:15 Léttar æfingar og svo í róandi nudd.
17:30 Velja föt fyrir kvöldmatinn og standa fyrir framan spegil.
19:30 Matur við kertaljós með kærastanum
22:00 Heit sturta (ein)
22:30 Njóta ásta
23:30 Krúttlegt spjall og knúserí
23:55 Sofna í faðmi hans

Hinn fullkomni dagur í lífi EKTA karlmanns!

6:00 Vakna!
6:15 Blowjob.
6:30 Skíta alveg svakalega meðan maður les íþróttasíðurnar í mogganum og DV
7:00 Morgunmatur, lambafillet og egg, ristað brauð og kaffi.
7:30 Limmósía kemur og skutlar manni útá flugvöll, fríir drykkir alla leið.
8:15 Hljóðfrá einkaþota til bandaríkjana, graðar unglingsstúlkur með í för
9:30 Ferð með þyrlu á flottasta golfvöllinn
9:45 Klárar fyrstu 9 holurnar á 2 undir pari
11:45 Hádegismatur, 2ja tommu þykkar svínasneiðar og 3-4 bjórar
12:15 Baknudd og blowjob.
12:30 Klárar seinni 9 holurnar á 4 undir pari
14:15 Limmosía útá flugvöll, fríir drykkir
14:30 Ferð með einkaþotu til Bahamas, blundur á leiðinni
15:15 Sjóstangveiðikeppni þar sem allir aðrir keppendur eru berbrjósta
kvenfólk
16:30 Nytt heimsmet, 340p lax halaður inn á 2mín
17:00 Einkaþota heim, erótískt nudd í boði Cameron Diaz... kemur í ljós að
hún kyngir
18:45 Skíta, sturta og rakstur. Ath skilaboð á símsvaranum: nytt starf með
fjórfaldar núverandi tekjur, íslensk getspá að staðfesta lottovinninginn og
boð í enn eitt kynsvallið hjá playboy .
19:10 Horfir á fréttirnr á allir leiðinlegustu pólitíkusarnir eru að segja
af sér
19:30 Kvöldmatur: 10kg nautasteik með bökuðum kartöflum og bjór. Allsnaktar
stelpur dansa uppá borðinu meðan mar borðar.
21:30 Kynmök með þremur gullfallegum stelpum og allar földu myndavélarnar
virka fullkomlega
23:00 Nudd og svo í heita pottinn með stelpunum
23:45 Háttatími
23:50 Reka við stanslaust í 12 sekúndur og svo hátt að hundurinn hleypur
útúr herberginu
23:55 Sofna........EINN!!