Frábærri helgi lokið og kuldahrollur í mér
Það var nú svo að á föstudaginn fór ég í Erfðafræðipróf þar sem ég ætlaði mér að ganga ofsalega vel en mér gekk samt ekki eins vel held ég og ég ætlaði mér...sem þýðir að ég slepp ekki við að lesa 40% af efninu fyrir lokapróf...en þetta kemur betur í ljós á föstudaginn.
Strax eftir prófið var farið heim að pakka niður fyrir sumarbústaðarferðina sem var í alla staði ofsalega hugguleg og góð...komst að því að við erum orðin ægilega hjónaleg, spiluðum úr okkur allt vit og fórum á Geysi og í göngutúr :) Það var nú líka farið í pottinn og vorum við í voðalegu ströggli að ákveða hvað hann ætti að vera heitur...a.m.k kom maður alveg karfarauður úr pottinum....hehe spurning að hafa hann einhverjum gráðum kaldari :)
Á sunnudaginn fórum við svo í heimsóknir á Selfossi. Við fórum til Sigrúnar, Heimis og Ólöfu Völu þar sem strákarnir gátu leikið Tiger Woods 07 eitthvað golfleik meðan við Sigrún dáðumst að litlu skvísunni :) Fórum svo til Sævars Gísla og Halldóru sambýlingskonu hans og þar fékk ég að sjá ansi hreint fróðlegt myndband úr óvissuferðinni þeirra...eitthvað fær mig til að halda að Gummi hafi ekki búist við því að ég fengi að sjá þetta því hann var a.m.k ekkert að reyna að passa sig :)
BTW væri alveg til í að sjá myndbandið sem var tekið úr óvissuferðinni okkar...spurning hvort væri hægt að redda því fyrir saumaklúbbinn hjá Hlíf og Höllu??
Enduðum svo í mat hjá henni mömmu og svo tók ég Hörpu með mér á handboltaleik þar sem Selfoss B var að spila á móti Bifröst sem var ansi hreint ekki spennandi en þó ágætlega skemmtilegt að fylgjast með en hann fór 49-22...greinilega ekki alveg nógu góðir þarna á Bifröst í handbolta.
Þannig að helgin mín var í alla staði góð...