Liðin vika + morgundagurinn hefur ekki alveg verið sú skemmtilegasta.
Gummi er búinn að vera á Akureyri og ég hef verið að læra uppfyrir haus, úff...
Næsta helgi verður svo Selfoss-helgi, þar sem ég er að fara að passa systkini mín. Þið sem verðið á Selfossi(og þeir sem eiga leið hjá) eruð meira en velkomin að koma í heimsókn :)
En svona þar sem ég hef verið ógeðslega dugleg að læra og fengið góðan bakverk sem aukaverkun þarf að lyfta sér upp á einhvern hátt og það hefur sko verið bókhlaðan. Ókey sumir skilja ekki af hverju ég keyri vestur í bæ bara til að læra...en það er bara svo ótrúlega gott að vera þarna með vinkonum sínum :D...Ég, Hrafnhildur og Hulda vorum sem sagt ofsalega duglegar á þjóbó í vikunni og vorum meira að segja komnar í lúmskt prófkastskap með tilheyrandi svefngalsa og gríni :D
en svo að lokum ætla ég aðeins að spá í einu...Ég var að horfa á Opruh í gær sem eru nú oft fínir þættir. Í gær var læknirinn hennar eitthvað að tala um hollan og óhollan mat og áhrifin á líkamann, já já flott með það. En það sem ég er búin að vera að spá í er af hverju í ósköpunum er hann alltaf í skurðstofugallanum sama hvar hann er??! Í gær fór hann til dæmis í "óvænta" heimsókn til einhverrar konu sem svaf 18 tíma á dag og var alltaf þreytt og hann fór að skoða í ísskápinn hennar. Minn maður mætti að sjálfsögðu í skurðstofugallanum, enda virðist hann ekki eiga neitt annað...og jú svo var hann líka með hanska!...það sem sagt leit þannig út þegar blessuð konan skreið til dyra að hann ætlaði að tækla hana niður og skera hana upp á staðnum....en svona er víst sjónvarpið, hann lítur svo trúverðugur út í svona galla af því enginn nema læknir klæðist svona galla...úff nú líður mér betur ;)
Góða helgi!
