Bylgju blogg

fimmtudagur, ágúst 31, 2006

Nokkur atriði...

Skólinn kominn á fullt og maður er farin að skila inn verkefnum og allt það sem fylgir skólanum.

Á laugardaginn er ég að fara í hörku óvissuferð með mínum selfoss-vinkonum og erum við 17 talsins sem erum búnar að skrá okkur...fjúff þetta verður eitthvað skrautlegt! :D

Gummi liggur hérna heima í veikindum og vill helst láta stjana við sig allan daginn af því hann er alveg ofsalega veikur og lítill í sér eins og karlmanni sæmir hehe ;)

Auður er komin heim frá Frakklandi og hlakka ég voðalega til að tjútta með henni á laugardaginn ;)

Sigrún á bara tvær vikur eftir af meðgöngunni!!! næ því bara ekki hvað þetta er fljótt að líða.

Bara koma því einu sinni enn á framfæri að ég er að fara að djamma á laugardaginn :D

þriðjudagur, ágúst 22, 2006



Svona var svipurinn á Háskólafólkinu þegar skólinn byrjaði aftur hehehehehehehe


Þá er sumarið búið og skólar byrjaðir að rúlla. Bylgja er byrjuð í skólanum og í tilefni dagsins var farið í bónusferð og í fyrsta skiptið síðan skólanum lauk í vor var keypt fyrir vikuna hehehehe. En síðasta helgi var rosaleg. Menningarnótt var á laugardaginn og frétti ég af nokkrum "ungum/gömlum" dömum á ferð um miðbæinn. Þar hneyksluðust þær yfir unglingadrykkjunni sem var í gangi og greinilega að "gömlu" dömurnar búnar að gleyma hvernig þær voru þegar þær voru UNGAR :) Svo fréttist af einni annarri sem þurfti að sækja út í bæ eftir íþróttanámskeið næturinnar hehehehe og hefur heyrst að það verði farið á framhaldsnámskeið á þessu íþróttanámskeiði :D ekkert nema gott um það segja. en nóg í bili og Áfram KR og Liverpool

fimmtudagur, ágúst 10, 2006

Jæja jæja...verslunarmannahelgin liðin og ekki var hún spennandi á mínu heimili. Ég er sem sagt búin að vera í veikindafríi síðan það var þrumað á mig. Lítur þetta ekki svo vel út og má ég víst ekki vinna meira í sumar og núna er bara að vinna í því að ná bata. Þannig að það er bara dagskrá uppá hvern dag, sjúkraþjálfun á hverjum degi, göngutúrar og heitir bakstrar. Skólinn byrjar svo 21. ágúst og var mér sagt í dag að ég yrði engin manneskja til að byrja í skólanum þá en ég verð bara að fá að standa í fyrirlestrum eða eitthvað, ég finn útúr því þar sem ég ætla nú ekki að sleppa skólanum.

Svona getur lífið verið skemmtilegt...

P.S. Mikið djöfull eru þessi spænska/mexikanska sápuópera leiðinleg!!! Mi gordo valentina sem snýst um feita stelpu sem er látin klæðast bólstruðum fötum og er sífellt grenjandi...OMG!

þriðjudagur, ágúst 01, 2006

Jæja það er bara stutt á milli blogga þessa dagana... En núna sit ég heima með tognun í hálsi og baki í kjölfar áreksturs sem mér tókst að lenda í. Ég bara skil ekki hvers konar segulstál ég er á aðra bíla hérna í Rvk. Málsatvik að þessum árekstri var það að ég var í sakleysi mínu að keyra í vinnuna á Vesturlandsvegi þegar umferðin stöðvast vegna framkvæmda á mislægum gatnamótum og jú jú minnsta mál fyrir mig að stoppa en sá sem keyrði næst á eftir mér var ekki með það á nótunum og bara ákvað að nota mig til þess að stöðva sig...sem sagt engin bremsuför eða neitt heldur bara dúndurhögg á mig...shit hvað mér brá, ég alveg titraði lengi á eftir. Jæja hann Gummi fór svo með mig uppá slysó og þar eyddum við deginum okkar í bið, skoðun og myndatöku meðan aðrir sóluðu sig :/.