Bylgju blogg

mánudagur, júlí 31, 2006



Þessi mynd er bara sett upp fyrir eina Gylgjuna hehehehehehe

Vá hvað er mikið búið að vera gerast síðan við skötuhjúin fluttumst í Grafarholtið:)
Love is in the air er bara sögnin eftir fréttir helgarinnar. Það eru æsispennandi tímar framundan eins og t.d. leikur Fylkis og KR í dag og að sjálfsögðu styðja allir sem einn KR-ingana. Eins og góður vinur minn hann Sævar Þór ætti að vita að ég held alltaf með honum í leikjum nema á móti KR þá leggur maður vináttuna til hliðar í 90 mín og styður sitt lið:)

Komið sæl!
Jæja ég var að skoða veðurspá á mbl.is og visir.is og segja þær að það verði hundleiðinlegt veður á þjóðhátíð (stormur og rigning)...reyndar náttúrlega aldrei að marka fyrstu spár...en allavena lítur þetta illa út fyrir þau sem eru að fara. Afskaplega verður þá gaman að fá símtal frá einhverju blautu og köldu fólki þegar ég á eftir að hafa það gott hvar sem ég verð :)

En helgin sem leið var afskaplega notaleg og bara mjög góð í alla staði, enda áttum við skötuhjúin ekkert annað en frí skilið miðað við alla þá vinnu sem við höfum stundað....en þar sem þessi helgi er búin þá eru víst bara 3 eftir þangað til skólinn byrjar og tvær af þeim eru vinnuhelgar...iss.

þriðjudagur, júlí 18, 2006


Jæja þá eru skötuhjúin flutt upp í sveit (Grafarholtið) í nýja BN íbúð og er hún bara rosa flott. Við keyptum okkur ný húsgögn í íbúðina og kvaddi ég piparsveinshúsgögnin mín um leið. Þar með er allt piparsveinslífið mitt farið sem ég átti áður en Bylgja flutti inn :) Núna stefnir bara í að maður verður orðinn bældur karlmaður fyrir fertugt hehehehehehehe. Tengdamútta og Bylgja voru rosalega duglegar við að þrífa gömlu íbúðina og erum við skötuhjúin á fullu að reyna koma okkur fyrir.

miðvikudagur, júlí 12, 2006














Jæja þá á minn maður afmæli í dag og er kallinn orðinn 29 ára hvorki meira né minna :) Hann er nú samt soddan stráklingur í sér og var orðinn svo spenntur að opna pakkann frá mér að hann fékk að opna hann eftir miðnætti í gær. Æj það var svo frábært að horfa á hann því hann var svo spenntur á svipinn og alveg reif pappírinn af. Ég gaf honum sem sagt PSP leikjatölvu og var kallinn alveg í skýjunum yfir henni :D
Í kvöld ætlum við svo að taka okkur frí frá vinnu og niðurpökkun og vera flott á því og fara að borða á Silfur sem er nýji staðurinn á Hótel Borg! jammí!

miðvikudagur, júlí 05, 2006

Enn ein helgin liðin og aðeins 7 helgar eftir fram að skóla og btw held ég sé að vinna eða upptekin 5 af þessum helgum!
Kallinn er kominn heim og mikið var nú gott að sjá hann :) Ég er nú að vona að við getum farið eitthvað í burtu eins og eina helgi en það verður bara að koma í ljós sýnist mér.

Um síðustu helgi fór ég þó í útilegu að Hallgeirsey þegar ég var búin að vinna á laugardaginn. Þetta var bara fínasta skemmtun fram eftir nóttu...fullt af skemmtilegu fólki sem maður þekkti og marga hafði maður ekki séð lengi :)

...hvað er svo málið með þetta haustveður?