Bylgju blogg

fimmtudagur, júní 29, 2006

Jæja jæja...svei mér þá að ég er með rosalega söknunarveiki :( ég er ekki vön að vera að tala um tilfinningar mínar hérna en svona er þetta bara þegar maður situr ein heima að horfa á sjónvarpið og styttist í að fara ein að sofa...ótrúlega skrýtið hvað maður getur orðið háður svona hlutum á stuttum tíma og mér sem leið alltaf voðalega vel þegar ég bjó ein.
Gummi sem sagt fór á mánudagsmorgun norður á hestamannamótið að vinna. Ég hefði sko alveg verið til í að fara í viku-útilegu með kallinum þar sem ég elska útilegur :) Ég er aftur á móti að halda í vonina um að það verði ekki rigning á laugardaginn því að ef að það rætist úr veðri, a.m.k að vissu marki þá ætla ég að fara í útilegu í eina nótt og nokkrar góðar stöllur með mér :).

Þá bara að krossa fingur og þar af leiðandi er vonandi Hallgeirsey á laugardaginn :)

mánudagur, júní 19, 2006

Hæ hæ!!
Jæja meiri hluti júnímánaðar liðinn og kemur hún Harpa heim á fimmtudaginn eftir hálfs árs dvöl í Danmörku. Óskaplega er maður farinn að sakna þess að hitta á stelpuna en úr því verður bætt seinna :)

Ég var að koma heim úr vinnunni og það er alltaf gaman að fá gjafir en í forstofunni beið mín þetta flotta golfsett á kerru ásamt hönskum ofl. og skemmtilegt kort með :)

Ég byrja á golfnámskeiði 3. júlí og er ég líka búin að finna mér 66°N galla sem er tilvalinn á golfvöllinn (enda í stíl við golfpokann hehe)...Svo verður bara drifið sig á völlinn og náttúrlega gert allt til að verða betri en Gummi (verður að vera soldið keppnisskap í manni ;)

OJJJJ!!! Er að skoða mbl.is og sá þessa frétt!!! Þetta er ákúrat leiðin sem ég labba alltaf heim af Pakkaranum og algjörlega aldrei að spá í það að þetta gæti komið fyrir mann á Selfossi! Ég fæ bara hroll :S

þriðjudagur, júní 13, 2006





"hjónin" komin saman í golf





Jæja það eru mikil tíðindi á heimili okkar þessa dagana. Við þurfum víst að vera meira og minna allan Júlí mánuð í breiðholtinu út af seinkunn á afhendingu á íbúðinni í grafarholtinu. Svo er maður á fullu þessa dagana í golfinu og var farið í skítakulda í gær og spilaðar 18 holur en fann ekki fyrir því sökum hversu vel klæddur kallinn var :) Bylgja hefur ákveðið að prófa koma í golfið og var maður ekki lengi að fagna því að núna getum við parið farið að fara saman í golf og keypt okkur golf-föt í stíl hahahahahahahahahahahahahahahaha En það er búið að finna golfsett handa Bylgju og núna er bara að fara koma kellunni á völlinn og láta hana æfa sig. Hún ætlar víst að fara á eitthvað námskeið fyrir byrjendur í golfi (bara fyrir konur) ;) Svo skráði ég mig í Golfklúbb Selfoss og bíð ég spenntur eftir að fara skrá "konuna" líka í klúbbinn hehehehehehehehe. Vá hvað það er kominn mikill 40 ára hjónasvipur á okkur, farin í golf saman og komin með station bílinn og allann pakkann fyrir utan börnin hahahahahahahahahaha En þangað til næst þá verður maður í golfi

fimmtudagur, júní 08, 2006

jiminn hvað það er lítið að frétta af mér!

Ég er bara að vinna a fullu eins og margir hverjir en þó gaf ég mér tíma á sunnudaginn að kíkja á vinkonur mínar á Selfossi og tjútta soldið með þeim, eða a.m.k djammaði ég með þeim sem voru ekki í ævintýraleit á Hellu :D

Ótrúlegt að á morgun sé kominn föstudagur aftur...vikurnar líða og styttist mjög í flutninga á okkur Gumma uppí Grafarholt! :D Ég reyndar hlakka ekki til sjálfra flutninganna en ég hlakka til að vera flutt þangað og þegar allt verður orðið fínt :)

þangað til næst (sem verður væntanlega ekki bráðlega) verið sæl...