Jæja það er langt síðan að ég hef tjáð mig hér. Konan búin í prófum og farin að vinna á fullu og við sjáumst orðið svona rétt fyrir svefninn þar sem það er alveg nóg að gera hjá okkur. Ég er æfa, þjálfa, vinna og keppa alla daga nánast þannig að það er lítill frítími. Bylgja stóð sig bara fjandi vel í prófunum og það eykur enn möguleikana að þegar hún verður búin að læra og komin í góða vel borgaða vinnu að ég get farið að leika mér í golfi og hætt að vinna :) hahahahahahahahahahahahahahahahaha
Hverjum hlakkar orðið til þegar þessar ömurlegu, leiðinlegum kosningum verður lokið????????????????????? Maður getur valla horft á sjónvarpið eða hlustað á útvarpið án þess að hlusta á þetta haleljúa pakk segja að það sé betra en hitt. Ég er ennþá hlægjandi af Eyþóri alkasyni af hans fáránlegu mistökum. Ég var andskoti vitlaus að láta nappa mig og missa prófið í 5 ár en að gera þetta maður í hans stöðu liggur við að sé vitlausara en mín mistök. hvað á maður svo að kjósa af þessum vitleysingum X-D? X-B? X-F? X-V? X-S? Maður bara getur ekki gert grein á milli hálfvitana sem eru að bjóða sig fram hér í Reykjavík. Þannig að ég ætla að kjósa minn bókstaf X-G:)
