Bylgju blogg

föstudagur, apríl 28, 2006

Komið að helgi.
Þá er komið að helgi og fyrir flesta þá verður þetta löng helgi og voða næs...nema náttúrlega hjá okkur námsmönnum sem hugsa ekki mikið útí það hvaða dagur sé...Ég allavena ætla að vera byrjuð að læra kl. 8:30 í fyrramálið með henni Hrafnhildi, já við stöllur erum sko duglegar ;)

En hvað er helst að frétta:

* Systkini mín náðu 8 ára aldri í gær

* Árni Grétar á afmæli í dag

* Gummi tók bílinn af mér í dag þar sem hann fékk bílprófið í gær

* Búið að vera rosalega heitt í dag og allir á Hlöðunni reyna að klæðast sem fæstum fötum

* Er að fara í atvinnuviðtal á þriðjudaginn sambandi við aukavinnu

* Kíki kannski í smá heimsókn á Selfoss á eftir á meðan Gummi fer á fótboltaæfingu (sem er á Selfossi)

Þetta er svona það eina sem mér dettur í hug í bili :)

mánudagur, apríl 24, 2006

Já sælir.
Núna sit ég ein á bókhlöðunni þar sem vinkonur mínar eru eitthvað ekki alveg að standast undir væntingum þessa próftörn ;) en ég hef frétt af því í dag að það verði góð mæting á morgun :D

Annars gengur ágætlega að læra...3 próf sem ég tek og verða þau 3, 8 og 12. maí og fer ég að vinna með kennurunum mínum strax á mánudeginum...það er vonandi að maður standi sig í stykkinu því þau eiga jú víst eftir að fara yfir prófin mín þegar ég byrja að vinna :D

Ég er svo að vonast til að fá aukavinnu í sumar, best að vera ekkert að segja of mikið strax þar sem það er nú ekki búið að ráða mig ennþá en það myndi alveg bjarga mér að fá aukapening í viðbót við það sem LSH ætlar sér að borga mér...svo er þetta þannig vinna að það er hægt að vinna með skólanum án þess að það ætti að hafa mikil áhrif og ég fór að taka það saman áðan hvað ég fengi á mánuði næsta vetur ef ég yrði að vinna og tæki námslán og ég held barasta að ég geti leyft mér að fara í klippingu reglulega, kaupa mér föt reglulega og jafnvel farið að kaupa aftur Kanebo krem og sonna og náttúrlega ekki verra ef maður gæti komið sér upp einhverjum sparnaði... :)

En svona eru pælingar mínar í dag...

laugardagur, apríl 22, 2006

Jæja sjáiði hvað það er mikið fjör á mér á laugardagskvöldi...
Bleikur stíll út í gegn...

mánudagur, apríl 17, 2006

Gleðilega páska
Ég var að koma heim eftir að hafa verið á selfossi yfir helgina. Gummi var að vinna þannig að ég stakk bara af í heimabæinn...
Ég er ekki með samviskubit yfir súkkulaðiáti þar sem ég hvorki fékk né smakkaði páskaegg enda svaf ég eiginlega af mér páskadaginn :D
Ég nefnilega fór á ball á laugardaginn og þar sem ég er orðin svo óvön drykkju endaði ég með því að taka heilan þynnkudag fyrir framan tv og hálf sofandi fram að kvöldmat ;)
En það er alltaf gott að komast heim til kallsins og núna er ég bara að bíða eftir að hann vakni þessi elska :D

mánudagur, apríl 10, 2006

Out of her/his league? eða kannski bara passa "vel" saman? :D



fimmtudagur, apríl 06, 2006

Svona endaði síðasti leikur hjá mér!!!!!!!!!!!!!






Jæja ég held að maður sé búinn að bæta við merki við hvað getur komið fyrir mann í íþróttum. Ég náði sem sagt í síðasta leik okkar Árborgar-manna að rústa á mér hnénu og fá snert af heilahristing sem er ekki gott. Er búinn að vera heima í 2 daga út þessu og mér líkar það ekki vel. Það má lesa um þessa hrakfarir okkar í síðasta leik á heimasíðu okkar og tekst Babu einstaklega vel að lýsa okkar 3-0 tapi mjög vel ásamt hrakförum mínum. Jæja svo er að líða að því að ég fer í bílprófið næsta miðvikudag klukkan 2 og svo verður það verklega ef ég næ þessu skriflega prófi sem ég er ekkert alltof viss um að ná. Í þessari viku eru 2 heiðursmenn búnir að eignast 2 heilbrigðar stelpur og það eru þeir Guðmundur Karl og Gestur og óska ég þeim innilega til hamingju með það og vonandi gangi allt vel hjá þeim.
En á morgunn á að fara flytja tengdó yfir í nýja húsið hjá þeim og því miður verð ég eins og einhver kelling horfandi á því hnéð á mér er þrefalt þessa stundina.
Þessa mynd hér að ofan tók Babu af mér þegar hjúkkan var að sprauta morfíni í rassinn á mér til að lina kvalir mínar og ekki leiddist honum það.

miðvikudagur, apríl 05, 2006

Sæl veriði!

Jæja maður er ennþá á fullu í verkefnaskilum í skólanum en ég er svona aðeins farin að sjá fyrir endanum á þessu sem betur fer!
Núna er ég bara heima að læra þar sem honum Guðmundi Inga tókst að fá þungt höfuðhögg í fótboltaleik (btw-stórhættuleg íþrótt) í gærkvöldi. Já já hausinn var myndaður bak og fyrir og sögðu læknarnir að ekkert væri að sjá á myndum þannig að hann væntanlega hefur hann fengið svona slæman heilahristing. Mér stóð nú ekkert alveg á sama í gærkvöldi að fara út á spítala eftir að Babú hringdi með þær fréttir að hann væri að fara í myndatöku og hann væri með rosalega slæma verki í höfðinu :/ en ég allavena ákvað að vera nú heima hjá kallinum í dag og fylgjast með hvort hann færi nokkuð að rugla eitthvað en núna er hann bara sofandi eins og hann er búinn að vera að gera meira og minna í dag.
Kveðjur úr Seljahverfinu...