Bylgju blogg

fimmtudagur, mars 30, 2006

Úldinn dagur og úldin helgi framundan...
já ég held þið úldnið upp þegar ég segi ykkur hvað ég er að gera...ég er sem sagt að skrifa ritgerð um mælingar á natríum í sermi. jiii hvað ég er að gefast upp á henni...
Ég get hreinlega ekki beðið þangað til að ég er búin að afgreiða þessi verkefni sem ég þarf að skila og svo náttúrlega prófin og þá er ég komin í SUMARFRÍ en ég hef ekki sagt ykkur frá því að ég er að fara að vinna á klínísku lífefnafræðideildinni á Landspítalanum í Fossvogi í sumar (vó soldið langt nafn á sumarstarfi)
en verið nú góð við hvort annað, það ber að nýta hvern dag eins og hann væri sá síðasti (ekki það að ég myndi eyða mínum síðasta degi í að gera þessa ritgerð :/)

sunnudagur, mars 26, 2006



Kallinn í nýja búningnum í gær.










Jæja þá er þessari 5 daga helgi að vera lokið hjá manni. Var veikur í 3 daga og er svona að skríða saman eftir það. Í gær spilaði ég minn fyrsta opinbera leik með Árborg FC þrátt fyrir að ég hafi verið áður skráður í þann klúbb þá hef ég bara aldrei náð því að spila opinberann leik með þeim. En leikurinn í gær var á móti því ágæta liði GG frá Grindavík og komust þeir í 2-0 á móti okkur en með harðfylgni og góðum karekter þá náðum við að jafna og sigra 3-2. Strákurinn spilaði 60 mín áður en þjálfarinn skipti mér útaf. Öll umfjöllun um leikinn góða hjá okkur sem einnig var fyrsti sigur Árborgar í deildarbikarnum frá upphafi klúbbsins í þessari keppni er á heimasíðu Árborgar FC Svo í gærkvöldi brosti ástin mín alveg ótrúlega blítt til mín og spurði mig hvort mig langaði ekki að koma í bíó með sér, Auði og Sævari kærasta hennar. Ég spurði á hvaða mynd var verið að pæla í að fara á og fékk svarið Brokeback Mountain. Eitthvað var ég búinn að sjá auglýsingar um þessa mynd en það sem ég var búinn að sjá var ekkert í líkingu um það sem átti eftir að gerast í þessari mynd. Ég fór með trega á þessa mynd en vildi náttúrulega vera góður við ástina mína og fara á þessa mynd með henni. Svo var farið í Regnbogann og keyptir 2 miðar og allt í góðu með það. Við fórum inn í sal og fengum okkur sæti meðan við vorum að bíða eftir Sævari og Auði. Auður og Sævar komu á SÍNUM TÍMA eins og þau eru vön hehe. En á meðan biðinni stóð þá fylltist salurinn af félögum eldri borgara og mér var ekki farið að lítast á þetta með þessa mynd. Svo byrjaði myndin og allt í góðu með það og ég sá það að þetta yrði LLLLLLÖÖÖÖÖÖNNNNNGGGGGG mynd. Svo gerðist það sem ég vissi ekki um þessa mynd að ÞETTA ER FOCKINGS HOMMAMYND SEM FJALLAR UM EKKI NEITT. Ég er enn í öngum mínum eftir þessa mynd og héðan í frá áður en ástin mín brosir blítt til mín og biður mig um að koma með sér í bíó verður allt kannað um myndina sem farið verður á.
Svo í dag erum við Árborgarmenn að fara leika í einhverri auglýsingu sem ég veit lítið sem ekkert deili á en það kemur síðar í ljós og mun ég fræða ykkur nánar um það.

fimmtudagur, mars 23, 2006

Komið sæl.

Núna liggur kallinn bara heima í flensu en ég ætla bara rétt að vona að ég verði ekki veik líka! úff ég yrði heldur tæp á tíma með allt saman í skólanum ef maður þarf að liggja í viku :/ en ég ætla að hafa trú á mínu sterka ónæmiskerfi þar sem ég hef ekki fengið hita síðan ég var bara krakki! :)

Það er lítið að frétta þar sem ég var bara einhverf um helgina og var mest alla helgina að læra útí skóla. Í vikunni fórum við Gummi þó að skrifa undir samning að nýju íbúðinni okkar í Grafarholtinu og bíðum við bara spennt eftir flutningi :)
Mamma og pabbi fara líka að flytja núna uppúr mánaðarmótum í nýtt hús í Kálfhólum og verður það líka voðalega spennandi :)

Ég ætla að láta þetta duga í bili, kannski betra að hlusta á það sem kennarinn er að segja! ;)

fimmtudagur, mars 16, 2006

Með óráði í gær?
Já svei mér þá að ég hafi ekki bara verið með óráði í gærkvöldi. Ég var með geggjaðan hausverk og ef ég hugsa til baka þá finnst mér ég varla muna hvað ég gerði eða sagði...nema hvað að eihverra hluta vegna fékk ég svona hugdettu eins og gerist oft þegar maður veit ekki hvað skal gera af sér og ég ákvað að TIPPA!...já þið lásuð rétt, ég settist niður og fór að pæla í tölfræði ensku deildarinnar (eitthvað verður maður að gera til að fá áhuga á þessum leiðindum) og skellti mér á eitt stykki miða í 1X2 fyrir næstu helgi. Já mín var ánægð með sig og fór að skoða síðuna hjá íslenskum getraunum betur sem by the way er stórhætturleg að mínu mati og já ég ákvað að skella mér á einn lengjumiða í leiðinni og meðal annars góðvini Gumma þá Liverpool menn :)
Þegar leikir gærkvöldsins voru búnir endaði ég með að vera 7.200 kr. ríkari...og ég verð að viðurkenna að ég hef aldrei verið eins spennt yfir því að vita hvernig úrslit í fótbolta yrðu :)...svo er bara að sjá hversu glögg ég var á leiki helgarinna hmmm...

miðvikudagur, mars 15, 2006

Góðan dag!
Jæja ég er á annari viku núna í verklegu á LSH. Ýmislegt skemmtilegt gert og þar á meðal hef ég soldið verið í því að vekja fólk á morgnanna til að stinga það í hendina! Skemmtilegt að segja frá því (að mínu mati) að í morgun hitti ég 99 ára mann sem ég átti að taka blóð úr og ég hef bara aldrei séð eins unglegan 99 ára mann, held ég hafi reyndar ekki séð 99 ára mann...en þessi leit ekki út fyrir að vera deginum eldri en 75 ára og meira að segja var húðin á þessum manni svo þykk og ungleg að ég átti bara ekki til orð...við kellingarnar vorum svo duglegar að hrósa honum fyrir að vera svona unglegur að ég held að það muni halda lífinu í honum næstu 10 árin í viðbót :D

Vitiði að ég hef ekki hugmynd hvort einhverjum finnist gaman að lesa um hvað ég er að gera í "skólanum" og oft finnst mér sjálf ekkert gaman að lesa um það hjá öðrum nema í gær var ég að lesa bloggið hjá fyrrum ferðafélaga, henni Heiðrúnu, sem er í guðfræði og hún segir alltaf svo skemmtilega frá öllu sem er að gerast í kringum hana. Hún er t.d að skrifa lokaverkefnið sitt og fjallar það um líkbrennslur og núna þarf hún að eyða sínum dögum í að sitja á bálstofum hehe! geri aðrir betur að gera það skemmtilega áhugavert :D

mánudagur, mars 13, 2006




Kallinn að setja´nn í gær








Já eins og stendur hér fyrir neðan þá hættum við skötuhjúin að vera Breiðhyltingar og munum flytja í nýja hverfið í grafarholti í sumar. Þetta verður spennandi að fara í alveg nýtt húsnæði. En helgin hjá okkur var bara þræl löt helgi. Það var verið í náttfötunum alla helgina nema í gær þá fór ég að spila með ÁrborgFC í gær æfingaleik á móti 2 fl. UMFA og endaði leikurinn 6-2 fyrir okkur:D Það má alveg greina frá því að ég er orðinn aðstoðarþjálfari hjá mfl. kvenna hjá ÍR í fótbolta og leggst það bara vel í mig.

föstudagur, mars 10, 2006

NÝ ÍBÚÐ!!
Hæ hæ það er helst að frétta af okkur skötuhjúum að við erum að fara að flytja í Grafarholtið í byrjun júlí í glænýja íbúð sem er verið að byggja :D
Íbúðin er með fínum innréttingu, parket í stofu og svefnherb., og flísar á baði og inní forstofu...alveg draumur í dós fyrir mína parta :D
Hérna eru svo smá sýningshorn á því hvernig íbúðin verður :)





þriðjudagur, mars 07, 2006


Þetta var fengið að láni frá vini mínum og fyrrum samherja :) honum Kidda sem er einnig þjálfari meistaraflokks ÍBV í handbolta í dag.








Hversu marga karlmenn þarf til að opna bjórdós?
Engan, bjórinn á að vera opinn þegar hún kemur með hann.

---------

Af hverju reynir maður ekki við konuna fyrir framan sig í biðröðinni á féló?
Kona sem er í biðröð á féló, getur aldrei haldið þér uppi.

---------

Af hverju hafa konur nettari fætur en karlmenn?
Þetta er eitt af grunnatriðum þróunarinnar, sem gerir það að verkum að þær geta
staðið nær eldhúsvaskinum.

---------

Hvernig veistu hvenær kona er að fara að segja eitthvað gáfulegt? Hún
byrjar setninguna á "Vitur maður sagði eitt sinn við mig..."

---------

Hvernig gerir þú við kvenmannsúr?
Þú gerir ekki við kvenmannsúr, það er klukka á eldavélinni

---------

Af hverju prumpa karlmenn frekar en konur?
Konur geta ekki þagað nógu lengi til að byggja upp nægilegan þrýsting.

---------

Ef að hundurinn stendur bakdyrameginn og konan við aðaldyrnar, hvoru hleypir þú
fyrst inn? Hundinum að sjálfsögðu, hann þagnar um leið og hann kemur inn.

---------

Hvað kallarðu konu sem hefur misst 95% af gáfum sínum? Fráskilda!

---------

Vísindin hafa fundið fæðutegund sem dregur úr kynlöngun kvenna um heil 90%
Fæðan er Brúðarterta.

---------

Í upphafi skapaði Guð heiminn og hvíldist.
Þá skapaði Guð manninn og hvíldist.
Þá skapaði Guð konuna.
Síðan þá hefur hvorki Guð eða maðurinn getað hvílst.

---------

Af hverju deyja menn á undan konunum sínum?
Þá einfaldlega langar til þess.

---------

Róni gekk upp að konu á Laugaveginum og sagði: "Ég hef ekki borðað í fjóra daga!"
Konan horfði á hann og sagði: "Ég vildi að ég hefði þennan viljastyrk!".

---------

Sonurinn: Er það satt pabbi, að í sumum ríkjum Afríku kynnist
eiginmaðurinn ekki eiginkonunni, fyrr en hann giftist henni?"
Faðirinn: Það gerist í öllum löndum, sonur sæll".

---------

Karlmaður auglýsti í einkamáladálkinum: "Kona óskast".
Daginn eftir fékk hann tugi bréfa, sem öllu voru á sama veg: "Þú getur fengið mína".

---------

Besta leiðin til að muna alltaf eftir afmælisdegi konunnar; er að
gleyma honum einu sinni.

mánudagur, mars 06, 2006

Þessi sjálfspróf eru náttúrulega bara grín sko :)

Your Career Type: Enterprising

You are engertic, ambitious, and sociable.
Your talents lie in politics, leading people, and selling things or ideas.

You would make an excellent:

Auctioneer - Bank President - Camp Director
City Manager - Judge - Lawyer
Recreation Leader - Real Estate Agent - Sales Person
School Principal - Travel Agent - TV Newscaster

The worst career options for your are investigative careers, like mathematician or architect.

laugardagur, mars 04, 2006

Ég er gömul sál :D
You Are 32 Years Old

Under 12: You are a kid at heart. You still have an optimistic life view - and you look at the world with awe.

13-19: You are a teenager at heart. You question authority and are still trying to find your place in this world.

20-29: You are a twentysomething at heart. You feel excited about what's to come... love, work, and new experiences.

30-39: You are a thirtysomething at heart. You've had a taste of success and true love, but you want more!

40+: You are a mature adult. You've been through most of the ups and downs of life already. Now you get to sit back and relax.

miðvikudagur, mars 01, 2006

Reykingar. Bölvaður óþverri segja sumir en aðrir geta ekki án þess verið. Ég hef reykt í 16 ár sem er ekkert smá langur tími. Í dag hef ég ekkert reykt og nefnist þessi dagur= DAGUR 1 í reyklausa átaki mínu og Bylgju ástar minnar. Ekki er laust við það að Extra white tyggjóið hafi verið góður sálufélagi í dag en allaveganna haldið mér frá sígarettunni. Ekki hafa hugsanir leitað mikið á mig með að fá mér sígó því ég reyni að taka þetta á jákvæðu hliðinni. Kannski kemur sá dagur sem ég verð alveg að springa og sjáum hvað gerist. Annað má segja um hana Bylgju mína held að þetta hafi gengið aðeins verr hjá henni en hún er samt ekkert búin að reykja þessi elska. Áður en varir verðum við orðin alveg reyklaus og það vonandi án þess að myrða hvort annað.