Myndin er næstum því eins og brotið mitt sem ég fékk gult spjald fyrir og ég er ekki sáttur við dómarann fyrir það sko.Jæja þá er þessi helgi liðin og gerðist margt um þessa helgi. Hræðilegt slys upp á Hofsjökli og annað við Hrafntinnusker þannig að félagar mínir í FBSH hafa haft nóg að gera þennann sólarhringinn. Það verður stór dagur á miðvikudaginn þegar við skötuhjúin ætlum að hætta að reykja og lifa heilbrigðu líferni. Við erum búin að kaupa okkur hjálpartæki til að ná að hætta reykja þannig að það eru engar afsakanir í boði. Ég var að keppa í fótbolta í gær með Árborg FC (klikkið til að lesa allt um leikinn) og vorum við að spila á móti Skallagrími frá Borgarnesi og sigruðum við 3-2 í skemmtilegum leik þar sem einn fékk blóðnasir, annar rotaðist og sá þriðji tognaði á ökkla.

















