Jæja ég er búinn að þegja hér á síðunni of lengi og það er orðið tímabært að láta í sér heyra. Síðustu dagar hafa verið frekar skemmtilegir fyrir mig að geta gert grín að mínum nánustu vinum og ættingjum og þá sérstaklega ástinni minni :P hehe. En eins og flestir lesendur þessarar heimasíðu hafa lesið að þá týndi hún veskinu sínu í smá misskilingi eins og ég vill bara orða það. En versta af þessu öllu saman er að hún týndi því á einum versta WANNABE skemmtistað EVER sem heitir því annars ágæta nafni Hverfisbarinn. En nóg um það. Við íslendingar unnum Serba í EM 2006 í handbolta í gær rosa fjör og í dag eigum við að spila við Dani þar sem ég á ættir mínar að rekja en auðvitað mun ég halda með Íslandi í dag. En helgin er plönuð alveg frá A-Ö og mun ég hrella tengdó þessa helgina aðeins og ekki verður það leiðinlegt. kærlig hilsen
föstudagur, janúar 27, 2006
miðvikudagur, janúar 25, 2006

MARBLETTIR!
jahérna ég held ég hafi aldrei verið eins marin um allan líkamann eins og ég er núna, hérna er einn sá versti sem ég er með núna :) en tilefni hans var að ég var að láta taka úr mér slagæðablóð til að láta mæla í mér svokölluð blóðgös, svona bara uppá gannið ;) nei nei þetta fylgir víst náminu :D
Niðurstöðurnar voru frábærar og mun betri en ég bjóst við þar sem ég er nú talin vera reykingamaður að það myndi sjást á niðurstöðunum en nei nei ég var bara með minni koltvísýring í blóðinu en meðal maður og bara rosa gott súrefni hehe...sýnir mér að það er bara allt í lagi að reykja þegar maður er ungur :D (bara að reyna að sannfæra sjálfa mig ;))
þriðjudagur, janúar 24, 2006
Jæja jæja...
Síðasta helgi átti aldeilis að vera skemmtileg og var hún það þangað til klukkan var svona að verða 5 á laugardagsnóttinni, þá gerðist örlítið "atvik" þannig að það endaði allavena með því að ég hef ekki séð veskið mitt síðan!! það er alveg óþolandi að hafa glatað því en ég hef þó ekki tapað voninni enn :)
Ég er svo að fara á Selfoss á fös-kvöldið og í skírn í Þykkvabænum á laugardaginn. Þannig að það verður ósköp notaleg næsta helgi, finnst voðalega skemmtilegar þessar helgar þegar Gummi er ekki að vinna :D
mánudagur, janúar 16, 2006
Þetta er nú soldið skemmtó :D
1. Hver ert þú?
2. Erum við vinir?
3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig?
4. Ertu hrifin/nn af mér?
5. Langar þig að kyssa mig?
6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir það.
7. Lýstu mér í einu orði.
8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst?
9. Lýst þér ennþá þannig á mig?
10. Hvað minnir þig á mig?
11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera?
12. Hversu vel þekkiru mig?
13. Hvenær sástu mig síðast?
14. Hefur þig einhvern tímann langað til að segja mér eitthvað en ekki getað það?
15. Ætlaru að setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um þig?
Jæja þá er þessari litríku helgi lokið og ný vinnuvika hafin því verr og miður því ég hefði alveg verið til í liggja heima í einn dag þessa helgina. Eins og má lesa hérna fyrir neðan þá var ég fyrir norðann meðan Bylgja var í eyjum og lenti í árekstri þar. Ég fór norður að dæma 3 handboltaleiki og gekk það upp og ofan en það sem er minnisstæðast eftir þessa helgi fyrir norðan er maturinn á veitingastaðnum Greifinn. Þeir kalla ákveðna tegund af pizzu þarna "Pizza Nautabanans" sem er alveg hreint út sagt sunnudagsþynnkupizza DAUÐANS sem þarf að láta búa til hér í RVK. Það sem er í þessari pizzu er: Bernaissósa, nautakjöt og franskar kartöflur. Þetta er allt saman snyrtilega raðað ofan á deigið og bakað. Það sem þetta bragðast vel er ekki hægt að lýsa með orðum hér í þessu bloggi. En það er eitt líka svoldið fyndið með norðanbúa er að ég og makkerinn minn í dómgæslunni hann Hörðu fórum á Cafe Akureyri á laugardagskvöldið til að fá sér svona einn fyrir svefninn. Allt í góðu með það en við keyptum okkur áfengi sem er á flestum veitingastöðum sem ég veit á sama verði en á Cafe Akureyri er eitthvað annað í þeim efnum. Ég keypti mér 2 glös af sama áfenginu og borgaði fyrir það fyrsta 830 kr, ok það er í lagi en svo fór ég aftur og keypti mér það sama og þá borgaði ég bara 700 kr og fannst mér þetta orðið svoldið fyndið. Svo fór Hörður og keypti sér í glas líka og borgaði fyrir það 750 kr og þá hlógum við mikið af bardömunum sem greinilega vita ekki mikið hvað þær eru að selja eða hvað það á að kosta. En þessi helgi var alveg frábær og ekki bætti úr skák að Man U tapaði um helgina meðan Liverpool sigraði :)
sunnudagur, janúar 15, 2006
Jæja þá er maður kominn til landsins og er á Selfossi eins og er meðan Gummi er þarna á Akureyri.
Ég var sem sagt í Vestmannaeyjum í jarðarför hjá Árna, bróðir pabba sem dó sviplega eftir að hafa verið nýgreindur með krabbamein. Ef maður lítur á björtu hliðarnar þá var mjög gaman að hitta fjölskylduna þar sem við hittumst nú ekki svo oft og suma hafði ég aldrei hitt áður. Þó var svona ákveðið að hafa ættarmót í sumar og ætla þá öll úr Noregi að reyna að koma og það yrði alveg frábært :D
Eftir jarðarförina var ákveðið að kíkja í heimsókn til Atla og Lillu (frændfólk í Vest.) og já allt í lagi með það nema þegar við erum að keyra úr götunni þeirra var hálkan svo mikil að við rennum fyrir bíl sem keyrði í hliðina á okkur :( já einhverra hluta vegna finnst mér ég vera búin að lenda í óþarflega miklum árekstrum síðustu ár!!! Bakið og hálsinn er ekki alveg að samþykkja þetta hnjask en ég vona að þetta fari ekki verr en er nú þegar.
miðvikudagur, janúar 11, 2006
Sæl!!!
það er kominn tími á að ég láti heyra í mér en ég hef þjást mjög síðustu daga vegna netleysis en það rættist úr því í gær og er komið þráðlaust net á heimilið okkar Gumma :D...þvílíkur munur, ég hef ekki verið svona netlaus síðan ég var bara krakki eða eitthvað og þetta var bara martröð netsjúklingsings :D
Annars hef ég aðeins bætt við síðuna og er komin mynd af honum Gumma mínum hérna til hliðar og svo eru komnar myndir sem voru teknar yfir hátíðirnar :)
Annars verður helgin þannig háttað að ég verð í Vestmannaeyjum og Gummi á Akureyri...
mánudagur, janúar 09, 2006
Jæja þá er þessari helgi lokið og ný vinnuvika hafin og Bylgja byrjuð í skólanum. Þessi elska átti afmæli eins og svo margir vita síðastliðinn föstudag og gaf ég ástinni minni nýjan GSM síma og náttbuxur. Núna ætti hún að vera fær í flestan sjó í sambúðinni okkar enda er ekki búið að spara mikið í að gera heimilið að samvist 2 manneskja. Sigrún vinkona hennar Bylgju kíkti í heimsókn í gær og ég fer ekki ofan af því að henni hafi litist miklu betur á íbúðina núna heldur en síðast þegar hún kom :). Þannig að það fer að líða að því að hún Bylgja geti farið að bjóða fólki í heimsókn og sýnt hvað henni gengur vel að gera allt sætt og fínt hjá okkur í eikarstílnum sínum:D
föstudagur, janúar 06, 2006
Gleðilegt ár öll saman. Í dag á ástin mín hún Bylgja 23 ára afmæli og vill ég óska henni innilega til hamingju með daginn og ég hlakka mikið til þegar ég verð búinn að vinna og gefa henni gjöfina sem ég keypti handa henni áðan. Þessi stúlka er alveg æðisleg og er ég rosalega heppinn að hafa náð að plata hana fyrir um það bil 4 mánuðum síðan í heimsókn;) því ég er alveg bál skotinn í þessari gellu. Við byrjuðum núna á nýju ári að búa saman og var farið í gær að kaupa aðeins í íbúðina. Við keyptum okkur flott skrifborð svo ástin mín geti lært og svo nýjan sjónvarpsskáp þannig að þetta fer allt að koma í fyrrverandi piparsveinsíbúðinni minni. Þykist vita að áður en ég veit af verður íbúðin orðin alveg frábær þökk sé ástinni minni því hún er alveg frábærlega dugleg að innleiða drenginn í að gera hana smekklega. En nóg í bili það er stutt í að vinnudagurinn verði búinn og ástin komi og sæki mig svo við getum brunað á Selfoss í mat til tengdó. p.s. Í fyrsta skipti er komið blóm sem ég hef persónulega borgað fyrir inn á heimilið þar sem ég hef búið einn en ekki lengur.