
Jæja jæja jólin koma eftir 3 daga!!
Ég er nú svona eiginlega að verða búin að öllu nema á eftir að kaupa eitthvað handa kallinum :) en ég er á leiðinni í bæinn eftir 10 mín og þá bara verð ég að afgreiða þetta mál :D
En jæja það er rosalega fínt að komast í jólafrí, reyndar er ég að vinna í þessu fríi mínu en það er þó tilbreyting frá skólanum :) og það besta við það að vinna er að þegar maður er búinn í vinnunni er maður sko búinn! og þarf ekki að hafa samviskubit yfir því að horfa á sjónvarp eða eitthvað slíkt :D
Ég er svo bara að bíða eftir 2 einkunnum en hinar tvær var ég mjög ánægð með :) en leiðist voðalega að bíða eftir hinum og þá sérstaklega ónæmisfræðinni sem ég er mjög spennt yfir þar sem það var 100% próf í 4 ein. áfanga...úff enda ekki lítið sem var lært undir það, fjúff!
En þetta er líklega síðasti pistill frá mér fyrir jól þannig að ég vil óska ykkur öllum gleðilegra jóla!

