Jæja nóg að gera þessa dagana :) við Gummi reynum að pússla saman dögunum en líklega mun mesti tími okkar vera sofandi saman á næstunni :/
En við vorum búin að gera okkur grein fyrir að þetta yrði svona á fram yfir próf þannig að við drifum okkur uppí
sumarbústað um síðustu helgi uppí Reykjaskóg :)
Föstudagur:Spennan var gífurleg, Gummi var eins og lítill krakki á jólunum að bíða eftir að vinnan yrði búin svo við kæmumst af stað :D
Við fengum gesti með okkur uppeftir sem voru Haukur&Katla og synir þeirra, Aron Örn og Árni Már sem eru tveggja og
5 mánaða guttar þannig að það var ekkert mikið um rólegheit fyrsta sólarhringinn ;) en alveg frábært að fá þau í heimsókn og var mikið hlegið og tekið náttúrlega upp spilið
Mr&Mrs sem við Gummi vorum reyndar ekki að gera eins góða hluti í eins og síðast en þó ekkert mikið verri en hitt parið :
D
laugardagur:Við kvöddum gestina með heitu súkkulaði og vöfflum sem hann Gummi fær allan heiðurinn af! :D sjáiði stelpur hvað ég er
heppin!! ;)
Eftir að gestirnir fóru var bara
leti í orðsins fyllstu merkingu...við (Gummi) elduðum samt rosa góðan mat, sötruðum vín og spiluðum undir kertaljósi :P nenntum samt ekki í pottinn þar sem hann var frekar kaldur og til þess að komast í hann hefðum við þurft að standa í að sjóða vatn og bera útí pott og það þótti okkur heldur mikið verk fyrir svona letiferð :D
Sunnudagur:Yndislegt að vakna ekki við
vekjaraklukku en við vorum ekkert að drífa okkur af stað og borðuðum heavy
brunch og spiluðum soldið líka :) (Gummi var alltaf að reyna að vera vinna mig í
rommí sem var ekki að takast ;)) svo þegar við vorum búin að þrífa og ætluðum að koma okkur af stað þá bíllinn
ekki í gang! og endaði með því að pabbi þurfti að koma og bjarga okkur :D hehe...en okkur tókst þó að komast á Selfoss þar sem Gummi fékk að fara í mat til
tengdafjölskyldunnar og heppnaðist það gríðarlega vel :D...fórum svo til Rvk og lágum uppí sófa með buxurnar hnepptar frá eftir átið :D