Bylgju blogg

laugardagur, október 29, 2005

Hrollhelgi
Jæja veturinn heilsaði aðeins uppá hér í gær og neyddist ég til að setja vetrardekkin undir, ég var náttúrlega ekkert ein um það og þýddi það langa bið fyrir utan en hún Sigrún var svo kær vinkona að vilja koma með mér að bíða :) takk Sigrún!
Í gær fórum við Gummi svo í heimboð til þeirra hjóna Sigrúnar og Heimis og kom sambýlingskona mín hún Auður einnig. Strákarnir og Auður skelltu í sig kaffi með vískí útí og eftir miðnætti var farið að sjá aðeins á mannskapnum ;) Við Sigrún erum alltaf svo stilltar að við fengum okkur ekki sopa þetta kvöld :D
Harpa kíkir svo í bæinn í kvöld og mun ég sjá um að halda henni hressri frameftir kvöldi :)
Annars er framhaldið á þessari viku ekki svo bjart þar sem það liggur fyrir lærdómur hægri vinstri...en þessari törn líkur þann 11. nóv en þá ætla ég og Gummi að kíkja í sumarbústað svona til að slaka á fyrir næstu lærutörn sem verða lokaprófin! Hlakka mjög mikið til að komast úr bænum og liggja í pottinum, namm! og ekki sakar að hafa Gumma mér við hlið þar ;)...ÞETTA(klikkið) lýsir ágætlega hugarfari mínu þessa dagana :)

mánudagur, október 24, 2005

Helgi afstaðin og var hún bara alveg ljómandi góð :)
Ég fór á Selfoss á föstudaginn og kíkti aðeins með henni Hrafnhildi á Pakkhúsið sem endaði með því að hún var orðin piss full og ég blá edrú :D hehe enda var stelpurófan ekki sátt þegar ég vildi fara að komast heim að kúra rúmlega 2...enda var hún þá nýbúin að fylla nefið á sér af neftópaki :D
Ég fór svo á laugardaginn í bæinn og tók ég hann Gumma með mér á Víðimelinn til að hitta nokkur vinildi í bjór og spil. Ég verð nú bara að monta mig á því að ég og Gummi vorum með meiri stig en Auður og Sævar í spilinu mr&mrs :D
Ég fékk svo að vita það daginn eftir að ég misskildi eitthvað hópinn í drykkjunni og að ég hafi verið sú eina sem var full :D hehe.

miðvikudagur, október 12, 2005


Jæja allt farið að róast niður aftur, tvö próf afstaðin og á bara eftir að gera eitt verkefni. Já og svona meðan ég man er ég með rosa flotta próftöflu :D búin 12.des!!! þegar sum ykkar eru bara að byrja í prófum þá ;) þannig að ég fæ sko langt og gott jólafrí.
En já aðal málið er að það er ball með NÝ DÖNSK á NASA laugardaginn næsta og ætla nánast allar vinkonur mínar að fara og ég að sjálfsögðu má ekki missa af þessu! :D meira að segja búið að finna partý handa okkur ;)
Látið samt ekki koma ykkur á óvart að ég verði ekki undir áhrifum áfengis á þessu balli en ég ætla að reyna að taka prufu í því að skemmta mér vel á balli án þess að vera að drekka :) en yfirleitt finnst mér eins og allir séu að labba á mér, hella yfir mig já eða bara hella yfir mig tilfinningum sínum sem viðkomandi hefur safnað upp og af einhverjum örsökum funndist ég rétta manneskjan til að hlusta á það :) sem ég náttúrlega er þegar maður situr inní stofu í rólegheitum, en þegar ég er á balli þá vil ég yfirleitt gera eitthvað annað en að vera sálfræðingur :D
Allir að fjölmenna á ball!

þriðjudagur, október 04, 2005

Þá hefst hinn sí-skemmtilegi tími en það er miðönn....þá er voðalega vinsælt hjá kennurum að hafa próf og láta okkur skila verkefnum. Af því leiðir að það er ógeðslega mikið að gera á þessum tíma :/ t.d er próf á fim og þri...þannig að maður mun bara vera á bókhlöðunni alla daga núna...En ég er sem betur fer ekki ein í skóla og myndast alltaf sérstök stemming á bókhlöðunni þegar svona mikið er að gera og má þar nefna skemmtilegu pásurnar okkar sem vilja oft verða pínu of langar :)