Bylgju blogg

þriðjudagur, september 27, 2005


Jæja ég er bara búin að vera veik og er ennþá að reyna að rífa mig uppúr þessu...Ég er ennþá með fáránlega mikinn hósta og þá náttúrlega sérstaklega þegar ég er að reyna að sofa á nóttunni.
en ég er komin á sýklalyf og þetta hlítur að fara að taka enda von bráðar...
Núna verður maður bara að taka sig á í lærdómnum og fara að koma sér aftur á bókhlöðuna...ætla að gera tilraun til að fara í dag með stelpunum....

miðvikudagur, september 21, 2005

ég var klukkuð!
Já já það nýjasta í bloggheiminum er að klukka aðra...og þá þarf maður að koma með 5 furðulegar staðreyndir um mann sjálfan.

1. Ég borða ekki fisk né humar!

2. Í allan 1.bekk létum við Sigurjón bekkinn halda að við værum systkini

3. Ég vann við að múra hús í 3 daga í pínulitlu indjánaþorpi í Guatemala...með pínulitlum indjánum.

4. Ég og Sigrún dönsuðum tvær saman uppá hvern einasta dag hér í gamla daga...héldum danskeppnir þar sem við vorum einu keppendur og unnum alltaf að sjálfsögðu ;)

5. Ég gef oft frá mér undarlegar stunur þegar ég er sofandi

Ég ætla að klukka Sigurjón, Sigrúnu og Beggu!

mánudagur, september 19, 2005



Hér er nakti kallinn!
Harpa vildi nakinn karlmann og þetta var það besta sem ég get boðið án þess að særa viðkvæmar sálir.
Annars er bara rosa fínt að frétta af mér...

fimmtudagur, september 01, 2005



Jæja ég er komin í helgarfrí eftir klukkutíma! :D ég ætla að fara á eftir í fallega heimabæinn minn, Selfoss, og klára að ganga frá lausum endum. Ég var svo að spá í að hitta þau sem ekki eru ennþá komin til Rvk í kvöld og annað kvöld og koma svo til Rvk aftur á lau til að fara í partý og hafa gaman :D
Spurning um að skilja Hot´n sweet flöskuna eftir í læstri skúffu!