Bylgju blogg

þriðjudagur, ágúst 30, 2005



Jæja spurning um að detta í það í Reykjavík um helgina?!...
Sigrún Hanna verður með innflutningspartý :P


Jæja...ég er komin í borgina og allt gengur vel.
Ég er prófaði að taka blóð úr manneskju í fyrsta skipti á miðvikudaginn síðasta og það var bara eins og ég hefði fæðst til að vinna við þetta því ég bara smell-hitti svona líka á æðina og fórnarlambið fann ekkert fyrir þessu. Næsta miðvikudag tek ég aðra törn í þessu og svo er ég bara útskrifuð í blóðtökum.
Annars er nú stefna mín að vinna meira á rannsóknarstofu en í blóðtökum. Ætla að fjárfesta í svona búning eins og sést á myndinni og verða forstjóri í líftæknifyrirtæki :D...meina hver myndi ekki ráða mig?! :)

mánudagur, ágúst 22, 2005


Já það fer sko ekki framhjá mér að að gæsaveiðitímabilið er byrjað!
Karlpeningurinn umturnast á þessu tímabili, hér eru t.d þrír kallar að ræða það hvernig gæsin flaug yfir túnið í morgun og hvar hún tók hring...þetta er alveg ótrúlegt áhugamál, síminn stoppar ekki á heimilinu, tekið frí í vinnunni og endalausir fundir og ferðir sem tengjast gæs.
Ég er nú svona að vona bara að minn kall verði ekki svona hrikalega mikill veiðimaður að gæsin taki alla athygli mannsins :)

föstudagur, ágúst 19, 2005



Jæja þetta er síðasti vinnudagurinn og skóli á mánudaginn. Stundartaflan er fullkomin, yfirleitt búin kl. 11:40 nema á fös þá er ég í fríi :D
Ég keyri á milli í næstu viku en svo verð ég KR-ingur í þar næstu viku :)
Veturinn leggst vel í mig og held ég að þetta muni vera skemmtilegur vetur...

miðvikudagur, ágúst 17, 2005

Þessar myndir fann ég á myndasíðu frá Kristínu frænku hennar Hörpu en ég varð að taka mér það bessaleyfi að birta þær :D hehe
What´s going on??!



mánudagur, ágúst 15, 2005

Stykkishólmur var SNILLD!



Hér vorum við að reyna að setja dótið í bílinn, fáránlega mikið dót með okkur :D


Við villtumst!!! Fórum 100 km of mikið og vissum nákvæmlega ekkert hvar við vorum, í eintómu myrkri útí rassgati! hehe :D


Komumst svo loksins á Hólminn kl 02.00, helltum í okkur og sáum nokkur kunnugleg andlit ;) Djammað langt fram á morgun!!


Vorum aldeilis hressar daginn eftir og komið sér út sem fyrst!


Gríðarleg stemming útí bæ þar sem góðvinur okkar hann Jakob Sveistrup bræddi hjörtu okkar allra :D NB við hittum hann svo um kvöldið :D


Sama stemmingin!


Skógarbjörn á svæðinu!


Vinir vors og blóma ball um kvöldið í bátnum Baldri sem var hrikalega skemmtilegt!
Það var reyndar farið í hótel partý áður en á ballið var farið en ég ég ákvað að sína ekki myndir úr því hehe...en skemmtileg stemming þar á ferð! :D



Meira ball!...
Helgin var í alla staði tær snilld og má segja að danskir dagar á Stykkishólmi hafi staðið við sitt!
Takk allir fyrir helgina!

fimmtudagur, ágúst 11, 2005

Það hefur verið ákveðið að fara á Danska daga á Stykkishólmi...hef ég frétt að það sé alltaf rosa stuð á þessari hátíð og sagði Bylgjan áðan að þeir góðkunnu Vinir vors og blóma muni spila á bryggjuballinu á laugardagskvöld...hvílík stemming er það??!
Legg til að allir sem eiga góð föt og tjaldstól og kannski tjald drífi sig á Stykkishólm!

þriðjudagur, ágúst 09, 2005



Það spáir góðu á fös og lau...

mánudagur, ágúst 08, 2005

Laugardagurinn var furðulega skemmtilegur miðað við hvað plönin voru engin...Það sópuðust allir til hennar Hörpu sem var nú ekki einu sinni að drekka sjálf stelpan og gleðin lá yfir fólkinu. Hópurinn svo skiptist aðeins þegar farið var út og var ég í Pakkara hópnum eins og kemur líklega ekki á óvart :)
Ég bara verð að koma því á framfæri að ég hef aldrei áður séð hana Hrafnhildi svona drukkna :D hehe það var alveg frábært að sjá hana!!...vodkinn fór svona helvíti vel í hana stelpuna...Grunar mig samt að hún hafi ekki verið eins hress og ég á sunnudeginum því ég heyrði bara ekkert í henni..
Hvernig líður þér Hrafnhildur??!

þriðjudagur, ágúst 02, 2005

* versló búin
* geðveikt gaman
* sumarið bráðum búið
* skólinn fer að byrja
* en djamminu líkur ekki.