Bylgju blogg

þriðjudagur, júlí 19, 2005


Þessir góðvinir mínir Heimir og Sigrún eru að fara að ganga í það heilaga á föstudaginn. Spenningurinn er gífurlegur og er ég ansi hrædd um að ég þurfi að hafa smá tissjú með mér í kirkjuna hehe. Tobbi og ég sjáum svo um veislustjórn, Auður Örlygs ætlar að syngja vel valin lög í kirkjunni svo eitthvað sé nefnt.
Blendnar tilfinningar koma upp við svona aðstöðu...rosalega ánægð fyrir þeirra hönd að hafa fundið hvort annað og vilji vera saman alla ævi og svo á móti kemur hvar í ósköpunum stend ég í lífinu??!...ég á ekki einu sinni kærasta og hvað þá gifting í nánd! :)
Tja jæja ég hef svo sem ekki áhyggjur af þessu bara pæling sem kemur upp hvort ég sé orðin svona asskoti gömul að vinafólk mitt fari að gifta sig í röðum núna eða hvað...

fimmtudagur, júlí 14, 2005


Ég var að horfa á Ísland í dag og fór að velta fyrir mér hvað væri orðið um karlmenn í heiminum. Alltí einu þykir það voða töff að vera ofurbrúnn með strýpur, fara í hand-og fótsnyrtingu, lyfta og bara helst eiga "men´s bag"
VÁ!!!
Ég segi ekki annað...er karlmaðurinn alltí einu kominn í samkeppni við konuna um hver getur verið kellingalegri??! Núna fer hann að taka sér mun lengri tíma inná baði en konan...með rosa snyrtiveski með öllum kremunum sínum þegar skroppið er af bæ og stelst í sléttujárnið manns á morgnanna...úff ég myndi ekki meika það!....ég væri mest hrædd um að hann vildi deila öðrum karlmanni með mér líka...
Þótt ég vilji nú alveg að það sé hugsað vel um sig...þá vil ég ennþá hafa þá af grófari kanntinum...fari ekki í panic þótt þeir gleymi að raka á sér bringuna og andlitið.
Mér finnst mest töff þegar strákar eru bara töff án þess að þurfa að vera með einhverja ofur-útbúnað...og að vera órakaður getur bara verið slatti sexý ;)
Amen!

sunnudagur, júlí 10, 2005

Jæja ég var að gæsa Sigrúnu í gær! Þetta var rosalega gaman og bara heppnaðist mjög vel. Við fórum m.a í magadans og vorum við bara helvíti góðar í að hrista á okkur mjaðmirnar þarna :D...eða við allavena trúum því fullkomlega ;) Strákarnir fengu nú smá sýningu þegar við hittumst um kvöldið því við fenguð að eiga lögin sem við notuðum og voru þau spiluð óspart og dansað með hehe.
Búin að setja inn myndir úr gæsuninni. Ég samt tók nú ekki margar...ég gleymi alltaf að ég sé með myndavél :)