Bylgju blogg

miðvikudagur, júní 29, 2005

Fyrsta helgin í júlí framundan og í fyrsta skipti síðan ég man eftir mér er ég ekki á leiðini í útilegu...nei hún Bylgja ætlar að vinna!! Eitthvað sem hefur aldrei þurft að stoppa mig áður. Svona er maður orðinn skynsamur í ellinni...
Strákarnir í vinnunni komu með kanínu hérna í fyrradag og ég fór með hana heim eina nótt svona til að sýna krökkunum og sonna...heyriði daginn eftir var hún Rósa (hún heitir það ;)) búin að koma sér upp fjölskyldu...mín bara komin með 6 unga...ég furðu lostin fór með kanínuna aftur á vegagerðina og hún fæddi meira að segja einn í viðbót um hádegi í gær...en hann fæddist látinn...og annar dó um morguninn...en 5 sprækir kanínu-ungar eða kjánar eins og það heitir víst (las það einhversstaðar)eru hérna með mömmu sinni á vegagerðinni :D
Rosa fjör hérna hjá okkur! :)

fimmtudagur, júní 23, 2005

shit hvað þetta sumar er fljótt að líða...hver helgin á eftir annari...
Ég hef ákveðið að fara ekki til Eyja um versló...eða svona nokkuð ákveðið, ætla a.m.k ekki að kaupa far fyrirfram. Ég og Hrafnhildur erum með ýmsar pælingar um hvað við ætlum að gera því hún fer ekki heldur. Hún er búin að hafa áhyggjur af því að hún missi sig aldrei og hver er nú betri manneskja í að draga hana í það en ég??! :D þannig að hver veit nema það verði kynningarhelgi í að missa sig hehe :D
Vonandi að ég sé ekki búin að gleyma neinu þar sem ég hef verið svo rosalega stillt á þessu ári að sjaldan hefur sést annað eins.
Ég er svo að fara í útilegu um helgina...spáir nú rigningu en ég á þennan líka flotta skjannahvíta pollagalla sem ég keypti á 12 þús í fyrrasumar og verður maður nú að nota hann eitthvað!

sunnudagur, júní 12, 2005

fín helgi afstaðin...
Ég, Auður og Harpa hittumst á föstudaginn og pöntuðum Menam mat, drukkum fullt og skemmtum okkur vel saman :) sérstaklega næs að vakna með þær um morguninn svo maður þurfi ekki að vera ein þunn heima...
Á laugardaginn fór ég til Reykjavíkur í afmæli til Katý sem var með mér í THÍ.
Ég reyndar var ekkert að drekka þar eða neitt og keyrði á Selfoss aftur um kvöldið.
Hefði nú samt verið gaman að detta í það og fara útí bæ...en maður verður nú að stilla sig aðeins fyrst maður er nú að fara á ball á fimmtudaginn líka :)