Komið að helgi.
Ég er búin að fá allar mínar einkunnir og ég er mjög sátt við þá niðurstöður. Ég náði sem sagt öllu og rúmlega það :)
Vikan leið ótrúlega hratt og ég vona bara að allt sumarið fljúgi ekki svona frá mér :/...ég er að spá í að kíkja í útilegu á eftir þar sem veðrið leyfir það algjörlega. Alltaf gott að sitja úti með grill og bjór :)
Það er komin stór rispa á bílinn minn eftir barnahjól :( veit ekki hvaða barn gerði það enda get ég lítið gert í þessu nema verða svekkt. Það nefnilega þykir voðalega vinsælt hjá börnum hverfisins að hjóla í planinu hjá okkur þar sem ekki margir hafa svona stórt plan. En þetta er nú bara hlutur og margt verra hefur maður nú lennt í.
Góða helgi!