Jæja....ósk ykkar hefur verið uppfyllt :)
Það hefur nú alveg ágætlega mikið gerst hjá manni...ég er t.d einni totu léttari (botnlanginn) en ég er orðin hress og spræk og er aðallega lærdómurinn sem kemst að þessa dagana....
Reyndar búnir að vera fínir páskar og er tonn af myndum af okkur skutlunum á vefsíðum landans.
Reyndar má ég til með að segja frá því að ég, Auður, sigrún, Harpa og Hrafnhildur fórum á misheppnaðasta djammið á síðasta föstudag...við fórum á skemmtikvöld knattspyrnufélagsins...og þetta var vægast sagt ekki að höfða til okkar...ég, Sigrún og Hrafnhildur fórum þó á Pakkhúsið eftirá og það bætti nú eitthvað upp en þó ekkert mjög sérstakt þar heldur....kannski erum það bara við sem erum orðnar of gamlar í þetta??!!