Líklega mun ég yfirgefa klakann í janúar á næsta ári og flytjast yfir til Svíþjóðar í smá tíma. Þetta er þó allt í vinnslu og mun koma betur í ljós á næstu dögum en það virðist samt eins og allir lítist voða vel á þetta og þá auðvitað fer ég :)
Svo er það nú rúsínan í pylsuendanum að það eru miklar líkur á því að hún Harpa fari til Danmörku í skóla á sama tíma þannig að við verðum þarna nágrannar og eigum ábyggilega eftir að hittast eitthvað þar sem Malmö er bara rétt hjá Kaupmannahöfn :D...þetta verður ábyggilega æðislegt, nú þarf ég bara að fara að ná mér í sænskar bækur og læra sænsku :P