Bylgju blogg

föstudagur, janúar 21, 2005

Ég er búin að setja inn nýjar myndirsíðan á afmælisdeginum mínum og úr óvissuferðinni.
Ég er að fara á Selfoss á eftir og ætla m.a á leikrit sem leikfélag Selfoss er að setja upp. Það verður ábyggilega mjög skemmtilegt eins og flest sem þeir taka fyrir hendur.
Annars bara gengur vel í drykkjuleysinu mínu og virðist það alveg ætla að ganga upp...hugsanlega verður ekki drukkið fyrr en fyrstu helgina í mars því þá er árshátíðin í skólanum og mér finnst nú ansi líklegt að ég vilji fá mér að minnsta kosti vín með matnum...mar verður nú að halda uppá á einhver tilefni :)
Góða helgi öll sömul

þriðjudagur, janúar 11, 2005

Jæja jæja...
Ég átti afmæli á fimmtudaginn og skruppum við nokkrar á Pakkhúsið og fengum okkur kaffi og bjór...Á laugardaginn var svo farið í óvissuferð og ýmislegt skemmtilegt gert :)flott ferð þarna á ferð ;)
Jæja nú erum við hætt að drekka á sambýlinu Víðimel...virðist samt koma mörgum á óvart að við fjörkálfarnir ætlum að hætta að drekka en núna verður sko bara heilbrigt líferni framundan :) Úff erfitt það en það skal takast í soldinn tíma :)

þriðjudagur, janúar 04, 2005

Gleiðilegt nýtt ár!
Já það er komið nýtt ár og þá vonandi nýjir og spennandi hlutir framundan.
Ég er nú allavena komin með myndasíðu þar sem ég ætla að reyna að vera dugleg að troða inn myndum :)
Það er allavena eitthvað komið inn núna svo endilega kíkið á það :)