ég er komin inn! :D
Já ég var að fá bréf í hendurnar um að ég sé komin inn á næstu önn og líta einkunnirnar mjög vel út og má segja að lægsta einkunnin mín þessa önnina er mun hærri en sú hæsta sem ég hef unnið mér í Háskóla Íslands...þannig að ég held að ég sé nú alveg á réttu sviði núna :)
Já ég er bara í Reykjavík þessa dagana, er búin að kaupa allt fyrir jólin og á bara eftir að klára að skrifa jólakortin og kaupa mér bíl. Er reyndar búin að gera tilboð í einn bíl og ég hugsa að ég eigi eftir að kaupa hann þannig að þið eigið ekki eftir að sjá mikla breytingu á mér þegar ég kem á Selfoss því þetta er næstum eins bíll og ég er á núna :) nema nýrri og dýrari týpa ;)
Sjáumst og hafiði það gott um jólin!!