Bylgju blogg

laugardagur, nóvember 27, 2004

Jæja jæja....
Það er búið að dæma mig í 100% rétti með síðustu ákeyrslu og þeir hjá Sjóvá telja ómöglegt að laga bílinn minn þar sem hann er nú allur skakkur greyið. Þannig að núna þarf ég að kaupa mér nýjan bíl...eins og mér finnst nú leiðinlegt að vera að standa í því! Samt soldið gaman að fara á annan bíl sko en hinn var svo góður við mig eitthvað :P
Annars bara próf núna að koma...2, 6. og 10. des eru þau...svo bara jólafrí með öllu tilheyrandi sem sagt fyllirí, fyllirí, kannski baka fyrir múttu, fyllirí o.fl.
Jafnvel verður stefnan tekin til Keflavíkur á annan í jólum :) og gæti það nú orðið soldið áhugavert held ég :)
En jæja ég er að spá í að hvíla mig aðeins...það er laugardagskvöld og ég er gjörsamlega að drepast úr þreytu enda búin að liggja yfir bókum í dag...kannski við Auður kíkjum svo á Sigrúnu á eftir :)

fimmtudagur, nóvember 18, 2004

Já ég get sko sagt ykkur það...þar var verið á KLESSA Á MIG í þriðja skipti í vetur!!!
Hvað er málið með það??? en þetta var nú reyndar versti áreksturinn þar sem ég var svo heppin að vera inní bílnum í þetta skipti. Ég og Katrín(með mér í líftækni) vorum á leið úr skólanum, við svo stoppuðum rétt áður en komið er að hringtorginu á Hringbrautinni og fengum svona líka dúndur aftan á okkur þannig að við skutumst á jeppa fyir framan sem vildi svo til að var mamma hennar Höllu Einars.
Núna er ég sem sagt tognuð í hálsinum og er með verki niður í bak...þá verð ég að segja að það sé skárra að vera ekki bílnum þegar það er klesst á hann.
Úff ég veit ekki hvað ég á að gera við þennan bíl...mér er klárlega bara ekki ætlað að eiga hann held ég...en...ég tek EKKI strætó ;)

föstudagur, nóvember 12, 2004

Föstudagur!!!
En ég á samt sem áður ekki eftir að gera neitt merkilegt um helgina þar sem það er svo stutt í prófin!
en ég tók sem sagt svona síðsta djamm-kvöld um síðustu helgi. Ég, Auður, Harpa og Sigrún mættum hressar í Vallholtið og átti heldur betur planið að vera að fá sér bara 3 bjóra og drekka svo vatn eftir 2...hmm við gleymdum svo alveg vatninu en samt vorum við nú ekki mikið drukknar...en já heimleiðin!! ég, Sigrún og Harpa ætluðum að sofa heima hjá Hörpu og það fór ekki betur en svo að hún Harpa tók ekki með sér lyklana af húsinu!
Heyrðu við Bakkabræðurnir mundum eftir því í gamla daga að það var alltaf hægt að redda sér með því að komast í gegnum glugga...jú þá byrjaði ballið...glugginn var kræktur aftur með efri krækjunni og Sigrún reyndi aftur og aftur en ekkert gekk...þannig að Bylgja klöngraðist þarna upp og reyndi með mikilli þolinmæði að opna gluggann. Ég sá svo fram á að það væri hægt ef við myndum finna eitthvað langt og mjótt...jú ég var við öllu búin og var með blýant í veskinu og tókst að lokum að opna gluggann!! úff það ætti að ráða mig í sprengisérsveitina held ég...
EN...við höfuðum klárlega verið of bjartsýnar og einhver kíló bæst við síðan við vorum 10 ára!!! og var ekki séns að troða Sigrúnu í gegn...Sáum við samt fram á að Auður væri nógu nett til að komast í gegn og ætlaði Harpa að hringja í hana...en nei hún ákveður snillingurinn að athuga hvort það væri opið!!...og viti menn það var opið!!! :D og við sem vorum búnar að standa í klukkutíma úti í rigningunni!!!
Já þetta var heldur betur furðulegt kvöld...