Bylgju blogg

miðvikudagur, september 22, 2004

jæja ég er komin aftur :)
Ég er nú búin að gera ýmislegt síðan síðast...alltaf nóg að gera og má þá helst nefna sumarbústaðarferðina góðu sem heppnaðist gríðarvel. Það var heldur dræm þátttaka hjá stelpunum og vorum við 6 stúlkurnar á föstudeginum og 5 á laugardeginum...en við aldeilis nöppuðum gaurana í næsta bústað sem komu yfir ;) Á laugardeginum var kynjaskiptingin því 5 stelpur og 12 strákar!! :D og ég get ekki sagt að við höfðum við einhverju að kvarta ;)
Ég er síðan bara búin að djamma fullt allar helgar nema síðustu helgi því ég þurfti að liggja í próflestri þá, alltaf að reyna að gera sitt besta í nýja skólanum sjáiði til :)
Ég er síðan búin að vera eitthvað sérstaklega óheppin því það er 2 sinnum búið að keyra á mig á síðustu 3 vikum!!! og í bæði skiptin stakk þrjóturinn af! helvítis Reykvíkingar geta ekki verið eins og menn og játað mistök sín!
Ætli ég hafi þetta ekki nóg í bili :) Hvað á svo að gera um helgina??