Sælir félagar!
Er ekki kominn soldill sumarfílingur í ykkur...hvítasunnuhelgin nálgast og þá ætla allir að gera eitthvað heyrist mér.
En ég kláraði að tæma íbúðina á sunnudaginn þannig að ég er tímabundið flutt aftur til fjölskyldunnar.
Ég fór í partý í sjálfstæðissalinn á laugardaginn þar sem hún Harpa bauð okkur í smá hóf til að fagna því að hún er búin með snyrtifræðina stelpan...til hamingju með það kona.
Við stelpurnar keyptum handa henni titrara og skartgripi :).
Og ég get sagt ykkur það að hann hefur verið notaður óspart og er orðinn batteríslaus!!! :D Hann gæti verið dýr í rekstri ef þetta heldur svona áfram...hehe...
Ég fór svo í hús Norðurljósa í gær í þáttinn Lífsaugað...jú það var mjög skemmtilegt og fékk ég meira að segja smá heimsókn til mín ;)
en það sem ég ætlaði að segja með Norðurljósaferðina er að ég sá alveg fullt af "frægu" fólki og gott ef hann Þórhallur í Ísland í dag kom ekki bara við öxlina á mér og sagði "má ég aðeins komast"...híhí
Svo voru þarna einhverjir hnakkar eins og "love guru" og fleiri...
en eitt frekar kaldhæðnislegt að það voru auglýsingar um allt frá Sjálfstæðisflokknum að bjóða í afmælisveislu!...Spurning hvort einhver mæti :)