Bylgju blogg

mánudagur, apríl 26, 2004

15.maí...15.maí....15.maí....15.maí...15.maí....15.maí....15.maí...15.maí....15.maí....

já þetta verður merkis dagur fyrir mig og okkur öll.

-Síðasta prófið
-Forsala á Metallica
-Laugardagur
-Djammdagur
-Kúpuvindladagur (fyrir þá sem fatta)
-Síðasti laugardagur fyrir vinnu
-ábyggilega einhver afmæli
-
-
-
nokkur laus pláss ef mér eða ykkur dettur eitthvað meira í hug....þannig að verið viðbúin þessum degi...ég lofa stemmingu!!!

miðvikudagur, apríl 21, 2004

já já....nú fer sko aldeilis að styttast í prófin hjá manni!!! ótrúlegt alveg hreint...
en já helginni eyddi ég á sveitabæ kallaður Neðri-Dalur og átti þar fínustu stundir... þetta var sem sagt svona fjölskyldustund samt ekki mín fjölskylda en mér var troðið með svo þetta væri allt á sléttri tölu :) en þetta er samt svo fínt þarna sundlaug í garðinum og sonna...sem var aldeilis notuð í vatnsfimleika mikla...svo var bara sötrað bjór á kvöldin og spilað....ég reyndar komst að því að ég á alveg rosalega erfitt með að fara snemma að sofa þegar ég er búin að drekka bjór....ég var eins og lítill krakki í rúminu alls ekki tilbúin að fara að hátta....heldur bara blaðraði í símann og sendi sms útum allt!

fimmtudagur, apríl 15, 2004

úff páskafríið var ekkert smá fljótt að líða!!!!
Ég fór nú bara í gamla heimabæinn minn Selfoss og átti þar ágætist stundir með vinum og vandamönnum.
Ég fór t.d í ljótufatapartý á miðvikudaginn og var feiknar stemming þar á bæ...en svo hafði ég fataskipti og fór á gamla góða Pakkhúsið. Þetta kvöld var sem sagt í fáum orðum tær snilld :D
Annars var ótrúlega rólegt hjá mér...nema hvað ætli ég hafi ekki farið á Skímóball (sem ég ætlaði ALLS ekki að fara á :S) en ég fór nú bara af því að ég fékk frítt inn....ástæðan fyrir því er frekar hallærisleg...en þessi hljómsveit tekur stundum upp á því að vera með ókeypis inn fyrir SILIKONBRJÓST!...og varð það auðvitað til þess að ákveðnar stúlkur ákváðu að láta testa brjóstin sín og fengu þau inngöngu :)
Ég held meira að segja að þetta hafi verið meira notað af stelpum sem eru ekki með silicon nema ég veit um eina öfgasílicon stelpu sem auðvitað skellti túttunum framan í dyraverðina :)
En annars er bara próftímabil að byrja og verður eitthvað lítið um skemmtanir nema ég fer reyndar í bústað um helgina en það er svona á síðasta séns...

laugardagur, apríl 03, 2004

Jæja það er laugardagur og ég er útí skóla að læra!
Já maður verður að klára allt fyrir páska svo maður þurfi ekki að vera að vesenast í skýrslugerð um páskana...
Þannig að það fer svo að líða að páskum og ég vona að þið eigið eftir að skemmta ykkur vel ;) og kannski maður sjái eitthvað af ykkur á pöppum bæjarins :P