jæja....það er nú ástand hjá fjölskyldunni...ég fór á selfoss á laugardaginn og var Birgitta veik uppí rúmi og búin að sofa allan daginn. ég fór eitthvað að reyna að tala við hana en hún horfði bara á mig eins og hún þekkti mig ekki....og svaraði engum spurningum...fannst okkur mömmu þetta mjög skrýtið þannig að mamma hringdi á lækni, jú hann vildi fá hana til sín í skoðun og hann vildi senda hana strax í bæinn á barnaspítalann. Það er sem sagt búið að greina hana með RS vírus sem hafði laggst á öndunarfærin og er hún í einangrun á barnaspítala hringsins í súrefni og vökva í æð blessuð stúlkan. Það er ekki vitað hvað hún þarf að vera þarna lengi en hún þarf samt líklega að vera í nokkra daga.
sunnudagur, febrúar 29, 2004
miðvikudagur, febrúar 25, 2004
já ég get sko sagt ykkur það að ástkæra vinkona mín hún sigrún á afmæli í dag :D til hamingju með það stelpan mín ;) við sigrún höfum alltaf verið saman í bekk í grunnskóla en við höfum nú reynar ekki alltaf verið vinkonur því við vorum fyrstu 5 árin mestu óvinkonur og gerðum mikið af því að rífast og ekki má gleyma stríðunum sem voru á milli minns hóps og hennar :) en í 6. bekk fórum við að fatta að við áttum ótrúlega vel saman...og gerðum við sko ýmislegt saman eins og að kaupa okkur fyrstu brjóstarhöldin...spá í 10. bekkjarstrákum og ég veit ekki hvað og hvað :)
en allavena til hamingju með daginn stelpa :)
hmm...ég held að ég sé netsjúk...
ég var sem sagt á selfossi í nokkra daga og ég var komin með fráhvarfseinkenni...enda er ég búin að liggja í tölvunni síðan ég kom í bæinn!
ég er sem sagt orðin mun sprækari núna....er samt sífellt hóstandi...
ég var svo búin að lofa að djamma með Arnóri og Heiðrúnu á Selfossi bráðum :)
þau verða nú að kynnast Pakkhúsinu er þaggi ;) þannig að þið krakkar á selfossi verið viðbúin því að skemmta ykkur rækilega með okkur vitleysingjunum bráðum!!
fimmtudagur, febrúar 19, 2004
ég hef þær slæmu fréttir að hún Bylgja er veik þessa dagana :( þannig að ég er eitthvað lítið búin að mæta í skólann...fór reyndar í verklega efnafræði í dag og er svo heppin að það er frí á laugardaginn þannig að ég get slakað á um helgina...er meira að segja að spá í að fara á Selfoss núna á eftir af því að það er svo hundleiðinlegt að hanga einn heima þegar maður er veikur!!
þriðjudagur, febrúar 17, 2004
já ég skal sko segja ykkur það að ég er að spá í að hafa getraun um það hvað ég gerði á laugardaginn???
a) ekki neitt
b) Pakkhúsið
c) Bíó
d) bara man þaggi!??
fimmtudagur, febrúar 12, 2004
Ég var að panta flug til Spánar í dag :) ég setti það svo bara á Vísa þannig að ég hef smá tíma til að velta því fyrir mér hvernig ég ætla að borga það....hmm...
Það er líka skemmtilegt að segja frá því að Aður og Sævar eru flutt inn til fjölskyldunnar minnar í Guatemala :)...manni langar bara að gráta yfir þvi að þau séu þarna. Ég var einmitt á kaffihúsi með Heiðrúnu og Arnóri í gærkvöldi og við vorum einmitt að tala um það hvað það væri gaman að vera í Antigua núna!
mánudagur, febrúar 09, 2004
já ég get sko sagt ykkur að það er komin ný vika...og eins og alltaf þá eru þær frekar fljótar að líða...
ég fór á selfoss á laugardaginn...og jú harpa, hrafnhildu og lena komu í heimsókn til mín og jú mikið rétt það endaði á pakkhúsinu...það lukkaðist líka svona vel og var bara frekar góð mæting....við hrafnhildur og elin vorum auðvitað ekki alveg tilbúnar í svefn eftir pakkhúsið frekar en fyrri daginn og fórum við ekki að sofa fyrr en undir morgun eða nær hádegi :) ...uss ég hét mér því á sunnudaginn að taka mér pásu í drykkju...en svo lítur allt út fyrir það að það verði farið í bláfjöll á laugardaginn!! tja maður spyr sig hvernig þetta endar allt saman :S
miðvikudagur, febrúar 04, 2004
Jæja ég og Tinna liggjum hérna eins og klessur fyrir framan sjónvarpið...ætluðum aldeilis að njóta síðasta stöðvar 2 dagsins en erum samt með stillt á skjá 1 en erum ekki að horfa á það heldur á netinu eins og alltaf ; )