Bylgju blogg

fimmtudagur, janúar 29, 2004

jæja...þá fer bara að koma helgi hjá okkur hérna!!
Ég er loksins komin í einhvern smá skólagír...por fin!...en ég á þó soldið langt í land með að ná upp lestri...en það hlítur að reddast eins og allt annað hjá manni :)
Ég er búin að ákveða að fara til Spánar í júní....við ætlum að hittast krakkarnir sem vorum saman í Guatemala, þannig að það er uppskrift að góðu geimi ;) Ég er reyndar ekki alveg búin að sjá peningahliðina ganga upp en maður getur alltaf tínt upp einhverja peninga hér og þar :)

miðvikudagur, janúar 28, 2004

já þá er allt bara að verða reddí hérna...heyrðu ég var greinilega ekki að fylgjast vel með því að mamma og pabbi verða bara 2 vikur úti...ég fékk svo það skemmtilega verkefni að passa hús foreldra minna og ömmu og afa hús...þannig að maður verður að kíkja á selfoss um helgina.
enda er nánast búið að plana helgina fyrir mann hérna :) en jú Harpa ætlar að vera hjá mér á föstudagskvöldið og er planið að skella nöglum á sigrúnu og sonju...ég er sem sagt komin með neglur líka...þannig að við vinkonurnar verðum allar svaka gellur ;)
ég nenni varla að segja ykkur hvað ég gerði um helgina...enda vitiði þið það flest öll ;)...Hrafnhildur þú áttir kvöldið á Pakkhúsinu :D segi ekki mikið um það hér ;)

þriðjudagur, janúar 27, 2004

Sæl...ég er að vinna í nýju útliti þannig að það vantar ýmislegt ennþá...eins og commentin :) verið bara þolinmóð ;)

miðvikudagur, janúar 21, 2004

jæja þá er mið vika núna...þannig að það er stutt síðan síðasta helgi var og stutt í næstu :) en ég þarf líklega ekki að segja ykkur það ;)
maður er svona ennþá að reyna að koma sér í skólagírinn...gengur nú eitthvað hálfhægt :S en það hlítur að koma með kalda vatninu...
já ég ætla mér að fara á selfoss um helgina...því ef að ég man rétt þá eru foreldrar mínir að fara til Kanarí í 3 vikur á þriðjudaginn. þannig að maður verður nú að kveðja liðið...annað er nú ekki hægt : )
en nóg í bili þarf að fara að work outa ;)

laugardagur, janúar 17, 2004

það er nú aldeilis búið að vera óveðrir hjá okkur hérna!
Í gær kom þetta svaka veður...ég var hjá Sigrúnu að horfa á Idol og sonna....svo um miðnætti þá ætlaði ég að fara út að reykja en þá hafði snjóað þetta líka svakalega! þannig að ég ákvað að fara að drífa mig heim áður en ég yrði föst þarna en viti menn þá hafði skafið stórum skafli sitt hvoru meginn við bílinn minn! þannig að það var ekki séns að fara neitt á honum...svo var líka kominn mikill snjór á götuna þannig að hann hefði aldrei komist það heldur...heyrðu ég fer þá labbandi af stað í blindbil og látum...og labbaði heim til Arndísar. Þó það sé nú ekki langt þangað þá kom ég rennandi blaut og köld þanngað (ég var ekki beint klædd í göngu)...ég sat svo aðeins hjá þeim stúlkunum og svo var Arndís svo elskuleg að skutla mér heim :) en þá er ekki öll sagan búin, því þegar ég kom heim þá blasti við mér snjóskafl á gólfinu og í glugganum og allt á floti!!!...þannig að ég þurfti að fara að moka snjó af gólfinu! Ég fór svo fótgangandi í skólann í morgun og eftir tímann fór Valdi (sem er með mér í efnagreiningu) sem var á jeppa með mér að ná bílnum...þannig að ég komst í ríkið og alles áðan :)
Já svona var þá föstudagskvöldið hjá mér :) skemmtið ykkur vel í kvöld elskurnar!!!
bæjó

miðvikudagur, janúar 14, 2004

jæja nú er ég eldri en síðast og ekki frá því að ég hafi stækkað um nokkra sentimetra í leiðinni...eða það væri óskandi...
já ég er ein sú hamingjusamasta manneskjan á landinu þessa dagana því jú ég náði öllum prófunum!!! Til hamingju ég með það :) það þýðir samt ekki að ég megi slaka eitthvað á því þetta voru nú ekkert bestu einkunnir sem ég hef séð á ævinni en samt sem áður er ég rosalega stolt af mér :)
Já nú fer það að gerast að mínir góðu vinir Auður og Sævar ætla að ganga í mín fótspor í mið-ameríku...og eflaust búa til nokkur ný...ég er að deyja mig langar svo svakalega með þeim!!! Þetta er snilldarstaður með snilldarfólki og ég held að allir íslendingar sem lifa í stressi alla daga hefðu meira en lítið gott af því að fara þangað í smá tíma...því þarna er einn stresslausasti staður í heimi...það er einfaldlega ekki til stress í þessu blessaða fólki!
Ég ætla að kveðja þau við Rauðavatn á morgun og láta þau fá soldið af peningum sem ég ótrúlega en satt tókst ekki að eyða áður en ég fór heim :)
En það er nú meira að frétta en það...því ég og Sigrún erum orðnar ægilega duglegar í ræktinni og fórum í gær og keyptum alls konar furðulega ávexti í Hagkaup í gær :) ég veit reyndar ekki hvenær ég á að borða alla þessa ávexti ég keypti fyrir 5-manna fjölskyldu!...
jæja það er komið nóg í bili....og jú ég kem ekkert á selfoss um helgina...bæjó

mánudagur, janúar 05, 2004

Þá fer jólafríið bráðum að ljúka og alvara lífsins heldur áfram...já skólinn byrjar á miðvikudaginn og byrjar hann ábyggilega á fullu strax...en gleymum því ekki að ég verð 21 árs á morgun. Ég á nú ekki von á að ég geri eitthvað sérstakt, fer bara í bæinn um kvöldið og tek til í íbúðinni eða eitthvað...
En já það var bekkjarmót hjá mér síðasta laugardag sem fór bara nokkuð vel fram fyrir utan smá brot á ljósi...en ég mætti svo hress og kát í þrifin daginn eftir....en jú það þarf víst líka að taka til...
en ég bið bara að heilsa og gleðilegt ár :)