komiði sæl og bletzuð!
ég get sko sagt ykkur að það fór vel um mig hjá Heimi og Sigrúnu á fimmtudagskvöldið....Heimir hrissti í Bailey´s fyrir okkur og við bara lágum fyrir framan sjónvarpið með Bailey´s í klaka...betra getur það varla orðið :)
Ég fór einmitt til þeirra aftur í gærkvöldi og við horfðum á sjónvarpið...meðal annars fylliraftana í fsu sem voru að dimmitera í djúpu-lauginni. Þar voru svo góðkunningjar Selfossbæjar að keppa um þennan bara ágætlega mann sem var hinu megin við tjaldið...
Ég veit ekki hvort maður eigi að segja það en ég var ekki sammála honum um valið á stúlkunni...ef ég hefði mátt ráða þá hefði hann sko fengið hana Önnu Möggu með sér :)
...en hvað um það....Sigurjón, Ásdís og Auður voru aðalleikararnir í salnum og ég er ekki frá því en hún Auður hafi fengið sér aðeins í glas um daginn...hehe...enda hringdi hún svo í mig eftir þáttinn og staðfesti það ;)...en það er ekkert til að skammast sín yfir því að dimmitera er algjör snilld og maður er ekkert að spara sjússinn. Sem minnir mig á eitt sem ég komst að í morgun....ég og ein vinkona mín úr lífefnafræðinni vorum að ræða um þann dag sem við dimmiteruðum og við komumst svo að því að við hittumst þegar við vorum að dimmitera :)...fyrir utan Heiðrúnu :). Hún er sko af skaganum þannig að maður er enn og aftur að komast að því að þetta er svo geðveikt lítið land!!!