já þá er bara kominn mánudagur enn og aftur....
ég gerði nákvæmlega ekkert á föstudagskvöldið, lá upp í rúmi og horfði á tv....Arndís og Jórunn komu í heimsókn og Arndís var hjá mér yfir nóttina...svo þurfti ég að vakna í skólann á laugardagsmorguninn eins og alla laugardaga :(
Á laugardaginn komu svo mamma og tvíburarnir í heimsókn og við fórum að versla....mamma var svo góð að hún verslaði handa mér stóla í eldhúsið :) takk mamma :*
en svo um kvöldið var skerjagarðspartý sem heppnaðist líka svona vel....ég gat þó ekki verið mjög lengi þar sem ég fór í partý til Arnórs líka....svo fórum við á Felix og hittum Sigrúnu, Heimi, Sonju, Tobba, Tinnu og Ellu í þessa líka góðu stemmingu :)
Þangað komu líka krakkar sem eru með okkur Tinnu í lífefnafræði þannig að maður þekkti bara nokkuð marga þarna...
Líka bara fyndið ég sat í sofanum að tala við Heiðrúnu og Tinnu þegar strákur fer að dansa þvílíkt upp á borði fyrir framan mig....okey alltí lagi með það en þegar ég leit á hann þá sprakk ég gjörsamlega úr hlátri því þetta var Sveinn Hjalti!!! Hahahaha :) hann varð líka geðveikt vandræðalegur og var eitthvað að reyna að afsaka sig en ég gjörsamlega gat ekki hætt að hlæja því ég sá hann alltaf fyrir mér í þvílíkum dansi :)
en já ég skemmti mér allavena rosalega vel á laugardaginn og fékk að kenna á því í þynnkunni á sunnudaginn!
heyrumst síðar fólk!