Bylgju blogg

þriðjudagur, september 30, 2003

reyndar verða breytingar á þessu plani...við Heiðrún erum að fara til Arnórs og mér heyrist að það eigi bara að borða nammi...spurning hvort maður hafi gott af því :/

Hvílík leiðindi!!!
Vinnubókin í eðlisfræði er búin að gera okkur Tinnu geðveikar í dag! Það er príttí möch það eina sem við höfum gert í dag....og klukkan orðin svona margt!
....en það á kannski eftir að rætast úr deginum í kvöld því Heiðrún og Arnór ætla að koma í heimsókn og við ætlum að elda eitthvað saman og rifja upp gamlar og góðar minningar frá Guatemala :)
en þar sem vinnubókin er ekki svo spennandi að segja frá og ég ætla að hlífa ykkur við sögum af henni... þá er þetta bara það eina sem ég get sagt í bili!
veriði sæl krúttin mín!

mánudagur, september 29, 2003

Hvernig var helgin hjá ykkur fólk?
Ég skrapp í helgarferð á Selfoss á Jet Black Joe ball í­ Hvíta húsinu...ekki frásögufærandi svosem nema hvað að ég var eins og versta grúbbía á þessu balli og dansaði og dansaði allan tímann....og líka alveg fremst!!!....sem ég er ekki vön að gera....
en allavena var þetta lí­ka þetta fí­na ball!
En núna verð ég að fara að læra í stærðfræðigreiningu!...sem er eins leiðinleg og orðið hljómar!